Auglýsing um styrk til menningarmála 2025

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála fyrir árið 2025. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar og er umsóknarfrestur til og með 10. mars.

Umsækjendum er bent á að kynna sér reglur um úthlutun styrkja til menningarmála.

Menningarstyrkir ársins 2025 eru áætlaðir 3,5 m.kr. en styrkur til einstaks verkefnis getur almennt ekki verið hærri en 250.000 kr.

Við úthlutun styrks fá styrkhafar sent greinargerðarform í þjónustugátt. Að verkefni loknu skal greinargerð berast sveitarfélaginu, fyrir árslok á úthlutunarári, og greiðist styrkur þegar greinargerð hefur borist. Greiðsla styrks fer fram gegn útgáfu rafræns reiknings. Reikningur skal berast Ísafjarðabæ að lágmarki tveimur vikum fyrir greiðsludag.

Sækja um styrk

Útlit umsóknar