Auglýsing um stöðuleyfi 2024
Ísafjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um stöðuleyfi fyrir gáma, báta og aðra lausafjármuni s.b.r. 2.6. kafla um stöðuleyfi í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Sækja þarf um stöðuleyfi til að láta lausafjármuni standa lengur en tvo mánuði utan þeirra svæða sem eru sérstaklega skipulögð og ætluð til geymslu slíkra lausafjármuna, þar með talið á lóðum.
Bent er á reglur Ísafjarðarbæjar um útgáfu stöðuleyfa.
Vakin er sérstök athygli á 7. gr. en þar segir að byggingarfulltrúa er heimilt að láta fjarlægja lausafjármuni sem getið er í reglum þessum og eru án stöðuleyfis
Ísafjarðarbær innheimtir gjöld vegna útgáfu stöðuleyfa með tilvísun til 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 sem hér segir:
- Stöðuleyfi hjólhúsa, báta og þess háttar, árgjald: 29.650 kr.
- Stöðuleyfi gáma, árgjald: 54.030 kr.
Sjá nánar í gjaldskrá byggingarleyfisgjalda.
Sótt er um stöðuleyfi í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar. Ef umsækjendur hafa ekki aðgang að rafrænum skilríkjum er hægt að fá aðstoð í móttöku Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, við að fylla út umsóknir á pappír.
Frestur til að skila inn umsóknum er til 21. október 2024.
Athugið að stöðuleyfi eru aðeins veitt til eins árs í senn og umsækjendur geta ekki reiknað með endurnýjun að ári liðnu. Umsækjendur eru því hvattir til að leita varanlegra lausna.
________________________________________
Kristján Svan Kristjánsson
- Byggingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar -