Auglýsing: Tillaga að svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum

Öll sveitarfélög á Vestfjörðum vinna nú að sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum.

Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2012, liggur nú fyrir. Gefst nú almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum sínum á framfæri áður en áætlunin er afgreidd af viðkomandi sveitarstjórnum.

Hægt er að kynna sér tillöguna með því að smella á meðfylgjandi hlekk:

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum 2024-2035

Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi þriðjudaginn 8. október 2024 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:

Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
v/ Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum
Hvanneyrargötu 3
311 Hvanneyri