Afsláttur fasteignagjalda fyrir elli- og örorkulífeyrisþega 2022

Ísafjarðarbær vekur athygli á að elli- og örorkulífeyrisþegum er veittur afsláttur af fasteignaskatti og holræsagjaldi vegna íbúða þeirra til eigin nota. Afslátturinn er að hámarki 100.000,- og er tekjutengdur. Ekki þarf að sækja um afsláttinn sérstaklega enda er hann tilgreindur á álagningarseðli hjá þeim sem falla undir reglurnar. Nánar er hægt að lesa um þetta í samantekt um fasteignagjöld 2022.

Við fráfall maka geta elli- og örorkulífeyrisþegar sótt um lækkun fasteignaskatts og fellur þá niður fasteignaskattur og holræsagjald að fullu fyrsta árið, þó að hámarki kr. 100.000,-.

Sótt er um afsláttinn rafrænt í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar. Íbúar sem ekki hafa tök á að fylla út rafræna umsókn geta haft samband við velferðarsvið Ísafjarðarbæjar í síma 450 8000 til að fá aðstoð. 

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2022.