Afmæli í sumar

Dagana 14. – 17. júlí í sumar verður því fagnað að 150 ár eru liðin frá því að Ísafjarðarkaupstaður fékk kaupstaðarréttindi og 20 ár eru frá stofnun Ísafjarðarbæjar. Sérstök afmælisnefnd hefur verið að störfum í vetur og vinnur hún að mótun dagskrár sem kynnt verður síðar. Í slíkri vinnu eru góðar hugmyndir alltaf vel þegnar og er hægt að hafa samband við bæjarritara eða upplýsingafulltrúa sem starfa með nefndinni.