Æfingavöllur á Torfnesi orðinn keppnishæfur

Stíf vinna við að gera æfingavöllinn á Torfnesi keppnishæfan hefur staðið yfir síðustu daga, en um helgina fer þar fram fyrsti heimaleikur meistaraflokks kvenna undir merkjum Vestra, auk tveggja leika hjá yngri flokkum og hjá meistaraflokki Harðar.

Mála þurfti völlinn þar sem veður kom í veg fyrir að hægt væri að sauma línurnar í völlinn í tæka tíð fyrir leikina.