Aðalskipulagsbreyting vegna orlofshúsabyggðar í Dagverðardal — auglýsing um niðurstöðu bæjarstjórnar

Orlofshúsabyggð í Dagverðardal, Skutulsfirði, aðalskipulagsbreyting

Auglýsing um niðurstöðu bæjarstjórnar

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar, í sumarleyfi bæjarstjórnar, samþykkti þann 18. ágúst 2024 tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna orlofshúsabyggðar í Dagverðardal, Skutulsfirði. Tillagan var auglýst frá 12. júní 2024 til 30. júlí 2024.

Tillagan í skipulagsgátt

Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar.

Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar