Aðalskipulag: Landfylling norðan Skutulsfjarðareyrar send til staðfestingar

Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020

Íbúðarbyggð á landfyllingu norðan Eyrar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 1. júní 2023 tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Tillagan var auglýst frá 6. mars til 2. maí 2023.

Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar, skipulag@isafjordur.is.

Arna Lára Jónsdóttir

bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

Uppdráttur
Greinargerð