Aðalfundur íbúasamtakanna Átaks á Þingeyri

Íbúasamtökin Átak boða til aðalfundar miðvikudaginn 18. maí 2022 kl. 19:30 í Blábankanum

Fundinum var seinkað vegna pestarástands á Þingeyri í byrjun árs og fyrirhugaðra breytinga á hverfisráðum Ísafjarðarbæjar.

Nú er komin betri tíð með blóm í haga svo við hvetjum alla til að mæta og og taka þátt í að efla samfélagið og framþróun Dýrafjarðar.

Óskað er eftir formannsefni og fólki í fimm manna stjórn sem er skipuð formanni, ritara, gjaldkera og tveimur meðstjórnendum, auk tveggja varamanna.

Þeim, sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn, er bent á að senda póst með yfirlýsingu þess efnis á ibuasamtokin.atak@gmail.com.

- Íbúasamtökin Átak -