Aðalfundur Hverfisráðs Súgandafjarðar
06.01.2016
Fréttir
Boðað er til aðalfundar Hverfisráðs Súgandafjarðar sem haldinn verður miðvikudaginn 20. janúar kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Suðureyri.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar um störf félagsins og nefnda á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Breytingar á samþykktum félagsins.
- Kosning formanns til tveggja ára.
- Kosning þriggja manna í stjórn til tveggja ára, einn situr áfram frá fyrra ári, og tveggja varamanna til tveggja ára.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
- Verkefni næsta árs.
- Önnur mál.
Allir íbúar með lögheimili í Súgandafirði og eru 18 ára og eldri hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundum félagsins og eru hvattir til að mæta.
Stjórnin