Aðalfundur Hverfisráðs eyrar og efri bæjar á Ísafirði

Boðað er til aðalfundar Hverfisráði eyrar og efri bæjar Ísafjarðar. Fundurinn verður haldinn í Edinborgarhúsinu fimmtudaginn 1. september n.k. kl. 20:00

 

Dagskrá:

 

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins og nefnda á liðnu starfsári.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins.
  3. Kosning formanns til tveggja ára.
  4. Kosning þriggja manna í stjórn og tveggja varamanna til tveggja ára.
  5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  6. Breytingar á samþykktum samtakanna ef þeirra hefur verið getið í fundarboði.
  7. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
  8. Vinnuhópar.
  9. Verkefni næsta árs.
  10. Önnur mál.