Ábendingavefur vegna nýrrar menningarstefnu

Opnaður hefur verið ábendingavefur vegna smíði nýrrar menningarstefnu Ísafjarðarbæjar. 

Íbúar eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri í gegnum vefinn en hægt er að senda inn tillögur í eftirfarandi flokkum:

  • Aðgengi íbúa að menningu og listum
  • Fjölbreytileiki mannlífsins
  • Starfsumhverfi listamanna
  • Skapandi atvinnugreinar
  • Alþjóðlegur suðupottur
  • Menning í öllum byggðakjörnum

Senda inn hugmynd