A10 almenningssamgönguverkefninu að ljúka

Styrkurinn fyrir tilraunaverkefnið A10 — almenningssamgöngur um land allt er nú uppurinn. Þetta þýðir að verkefninu lýkur eftir daginn í dag, fimmtudaginn 13. júní, þar sem fjárheimildir þess hafa verið fullnýttar.

Þær ferðir sem þegar hafa verið pantaðar verða farnar en lokað hefur verið fyrir fleiri pantanir.

Ísafjarðarbær þakkar íbúum og bílstjórum fyrir þátttökuna og vonar að sem flestir hafið notið góðs af því.

Næsta skref er að vinna úr þeim gögnum sem hafa safnast saman og skila lokaskýrslu. 

Nánar um verkefnið: 

Árið 2022 samdi Ísafjarðarbær við Byggðastofnun um tilraunaverkefni í almenningssamgöngum mill Flateyrar og Ísafjarðar. Verkefnið fólst í niðurgreiðslu á pöntunarakstri á leigubílum. Horft verður til reynslu af verkefninu sem fordæmisgefandi fyrir þjónustu við Suðureyri og Þingeyri.

Tengd frétt:

Tilraunaverkefnið A10-Flateyri um almenningssamgöngur er hafið