541. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 541. fundar fimmtudaginn 31. október.

Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Gjaldskrár 2025 - velferðarsvið - 2024030141
Tillaga frá 482. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 10. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá velferðarsviðs fyrir árið 2025.

2. Nefndarmenn 2022-2026 - yfirkjörstjórn - 2022050135
Tillaga Jóhanns Birkis Helgasonar, f.h. D-lista Sjálfstæðisflokks, um að Guðný Stefanía Stefánsdóttir verði kosin aðalfulltrúi D-lista í yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar, í stað Óðins Gestssonar, og að Þorlákur Ragnarsson verði kosinn varafulltrúi í stað Guðnýjar Stefaníu.

3. Nefndarmenn 2022-2026 - undirkjörstjórnir - 2022050135
Tillaga forseta um kosningu undirkjörstjórna fyrir Alþingiskosningar 2024 samkvæmt framlögðum lista. Sex kjöreildir eru í sveitarfélaginu og skipa þrír hverja þeirra, auk nægjanlegra margra varamanna.

4. Fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2025 - 2024030126
Bæjarstjóri leggur fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2025 fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

5. Álagningarhlutfall fasteignagjalda 2025 - 2024070020
Tillaga frá 1301. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 28. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði frá fyrri ákvörðun bæjarstjórnar þann 15. október 2024, þannig að skattur á íbúðarhúsnæði verði 0,50%, skattur á atvinnuhúsnæði verði óbreyttur 1,65%, skattur á opinberar byggingar verði óbreyttur 1,32%, og lóðarleiga verði óbreytt 1,5%.

6. Framkvæmdaáætlun 2025 til 2035 - 2024030143
Bæjarstjóri leggur framkvæmdaáætlun Ísafjarðarbæjar 2025-2035 fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

7. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 10 - 2024040018
Tillaga frá 1299. fundi bæjarráð, sem haldinn var 14. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 10 vegna uppreiknings á samningi við Hjallastefnuna vegna reksturs leikskólans Eyrarskjóls, auk breytinga á þjónustukaupum Grunnskólans á Ísafirði.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 20.200.000,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 20.200.000 og lækkar rekstrarafgangur því úr 159.300.000,- í 139.100.000
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 20.200.000 og er rekstrarafgangur lækkaður úr kr. 478.581.812,-. í 458.381.812,-.

8. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 11 - 2024040018
Tillaga frá 1299. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 14. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 11 vegna hagræðingar í ferliþjónustu.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er lækkun kostnaður um kr. 19.000.000,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 19.000.000 og hækkar rekstrarafgangur því úr 139.100.000,- í 158.100.000
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 19.000.000 og er rekstrarafgangur hækkaður úr kr. 458.381.812,-. í 477.381.812,- 

9. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 12 - 2024040018
Tillaga frá 1301. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 28. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauki 12 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2024, vegna Jöfnunarsjóðs: Samþættingar þjónustu, skólamötuneyta og tekjujöfnunarframlaga.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar eru auknar tekjur um kr. 29.000.000,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 29.000.000 og hækkar rekstrarafgangur því úr 158.100.000,- í 187.100.000
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 29.000.000 og er rekstrarafgangur hækkaður úr kr. 477.381.812,-. í 506.381.812,-.

10. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - viðauki 13 - 2024040018
Tillaga frá 1301. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 29. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 13 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2024, vegna aukinna tekna hafnarsjóðs og fráfalls lántöku.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar eru auknar tekjur um kr. 233.618.188,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og er rekstrarafgangur því óbreyttur í kr. 187.100.000,-.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 233.618.188 og er rekstrarafgangur hækkaður úr kr. 506.381.812,-. í 740.000.000,-.

11. Stjórnsýsluhús- tengibygging - 2024100045
Tillaga frá 1299. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 14. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki byggingaáform Íslandsbanka vegna tengibyggingar á fyrstu hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.

12. Snjómokstur útboð Önundarfjörður, Súgandafjörður og Dýrafjörður - Flateyri og Önundarfjörður - 2024080147
Tillaga frá 1300. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 21. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki tilboð Búaðstoðar vegna moksturs á Flateyri og í Önundarfirði, með fyrirvara um að uppfyllt séu hæfiskröfur sem settar eru fram í útboðsgögnum. 

13. Snjómokstur útboð Önundarfjörður, Súgandafjörður og Dýrafjörður - Dýrafjörður - 2024080147
Tillaga frá 1300. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 21. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki tilboð Kjarnasögunar vegna moksturs á í Dýrafirði, með fyrirvara um að uppfyllt séu hæfiskröfur sem settar eru fram í útboðsgögnum.

14. Snjómokstur útboð Önundarfjörður, Súgandafjörður og Dýrafjörður - Súgandafjörður - 2024080147
Tillaga frá 1300. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 21. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki tilboð Verkhafs vegna moksturs í Súgandafirði, með fyrirvara um að uppfyllt séu hæfiskröfur sem settar eru fram í útboðsgögnum.

15. Ósk um breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Seljalands - 2024060076
Tillaga frá 640. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. október 2024, um að bæjarstjórn heimili auglýsingu á skipulagslýsingu skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsbreytingin nær til svæðis við götuna Seljaland, ofan Skógarbrautar á Ísafirði.

16. Suðurtangi, atvinnustarfssemi. Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - 2023110129
Tillaga frá 640. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 við Suðurtanga.
Tillaga að uppdrætti og greinargerð var auglýst frá og með 20. ágúst 2024 til og með 3. október 2023. Tekið hefur tillit til innsendra athugasemda. Nefndin telur að breytingar séu þess eðlis að ekki þurfi að auglýsa að nýju m.t.t. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

17. Deiliskipulag Suðurtangi - Breyting 2023 - 2023040059
Tillaga frá 640. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. október 2024, um að bæjarstjórn staðfesti greinargerð og uppdrátt vegna endurskoðunar deiliskipulags við Suðurtanga, Skutulsfirði, í samræmi við 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, nefndin telur breytingar óverulegar og ekki tilefni til að auglýsa að nýju.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem er unnin samhliða breytingu á aðalskipulagi Suðurtanga.

18. Ártunga 6, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2024100022
Tillaga frá 640. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki að Sigurður Guðmundur Óskarsson fái lóðina við Ártungu 6 á Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út, innan 12 mánaða frá úthlutun.

19. Grundarstígur 4, Flateyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2024080128
Tillaga frá 640. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki að heimila útgáfu lóðarleigusamnings við Grundarstíg 4 á Flateyri.

20. Smárateigur 3, Hnífsdal. Umsókn um lóðarleigusamning - 2024100084
Tillaga frá 640. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki að heimila útgáfu lóðarleigusamnings undir Smárateig 3 í Hnífsdal.

21. Hlíðarvegur 28, Ísafirði. Umsókn um lóðarleigusamning - 2024100082
Tillaga frá 640. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 24. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki að heimila útgáfu lóðarleigusamnings undir Hlíðarveg 28 á Ísafirði.

Fundargerðir til kynningar

22. Bæjarráð - 1299 - 2410012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1299. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 14. október 2024.
Fundargerðin er í 14 liðum.

23. Bæjarráð - 1300 - 2410015F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1300. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 17. október 2024.
Fundargerðin er í 7 liðum.

24. Bæjarráð - 1301 - 2410018F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1301. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 28. október 2024.
Fundargerðin er í 13 liðum.

25. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 640 - 2410014F
Lögð fram til kynningar fundagerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 10. október 2024.
Fundagerðin er í 8 liðum.

26. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 11 - 2410011F
Lögð fram til kynningar fundargerð 11. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 16. október 2024.
Fundargerðin er í 8 liðum.

27. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 151 - 2410009F
Lögð fram til kynningar fundagerð umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 10. október 2024.
Fundagerðin er í 4 liðum.

28. Velferðarnefnd - 482 - 2410003F
Lögð fram til kynningar fundagerð umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 10. október 2024.
Fundagerðin er í 4 liðum.