517. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 517. fundar fimmtudaginn 15. júní. Fundurinn er haldinn í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum neðst á þessari síðu eða á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá
Almenn mál
1. Nefndarmenn 2022-2026 - kosning forseta bæjarstjórnar - 2022050135
Tillaga forseta um kosningu forseta og varaforseta bæjarstjórnar samkvæmt 7. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Tillagan er sú að Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verði kjörinn forseti, Magnús Einar Magnússon fyrsti varaforseti og Jóhann Birkir Helgason annar varaforseti bæjarstjórnar.
2. Nefndarmenn 2022-2026 - kosning bæjarráðs - 2022050135
Tillaga forseta um kosningu þrjá aðalfulltrúa og þrjá varafulltrúa í bæjarráð til eins árs, auk áheyrnafulltrúa og varaáheyrnarfulltrúa, sbr. 27. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar. Jafnframt tillaga forseta um kosningu formanns og varaformanns bæjarráðs.
Tillaga forseta er að Gylfi Ólafsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Kristján Þór Kristjánsson verði kosin aðalfulltrúar, og Magnús Einar Magnússon, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Elísabet Samúelsdóttir verði kosin varafulltrúar, auk þess sem Jóhann Birkir Helgason verði kosinn áheyrnarfulltrúi, og Steinunn Guðný Einarsdóttir verði kosin varaáheyrnarfulltrúi. Formaður yrði Gylfi Ólafsson og varaformaður Nanný Arna Guðmundsdóttir.
3. Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - sumarleyfi 2023 - 2022050136
Tillaga forseta um að sumarleyfi bæjarstjórnar verði tveir mánuðir, júlí og ágúst 2023, og að bæjarstjórn komi saman til fyrsta fundar að loknu sumarleyfi þann 7. september 2023.
Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með fullnaðarákvörðun mála samkvæmt 8. gr. samþykkta um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
4. Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - fundadagskrá 2023-2023 - 2022050136
Tillaga forseta að dagsetningum bæjarstjórnarfunda september 2023 til og með júní 2024, samkvæmt minnisblaði Bryndísar Óskar Jónsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 13. júní 2023.
5. Bræðratunga, raðhús - 2023010245
Tillaga frá 610. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 8. júní 2023, um að bæjarstjórn heimili óverulegar breytingar á deiliskipulagi við Tunguskeið skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010, vegna fjölgunar lóða undir 6 íbúða raðhús, við götuna Bræðratungu.
6. Brekkugata 56, 470. Umsókn, endurnýjun lóðarleigusamnings - 2023050171
Tillaga frá 610. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 8. júní 2023, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings undir fasteignina við Brekkugötu 56 á Þingeyri.
7. Seljaland 23, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2023060012
Tillaga frá 610. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 8. júní 2023, um að bæjarstjórn heimili samþykki að úthluta Rakel Sylvíu Björnsdóttur lóðinni við Seljaland 23, Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
8. Gott að eldast - 2023060021
Tillaga frá 471. fundi velferðarnefndar, sem haldinn var þann 8. júní 2023, um að bæjarstjórn samþykki að sótt verði um þátttöku í tilraunaverkefninu ásamt þeim sveitarfélögunum sem spanna þjónustusvæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Fundargerðir til kynningar
9. Bæjarráð - 1243 - 2306001F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1243. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 5. júní 2023.
Fundargerðin er í sjö liðum.
10. Bæjarráð - 1244 - 2306006F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1244. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. júní 2023.
Fundargerðin er í ellefu liðum.
11. Fræðslunefnd - 454 - 2305026F
Lögð fram til kynningar fundargerð 454. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 6. júní 2023.
Fundargerðin er í sex liðum.
12. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 610 - 2306002F
Lögð fram til kynningar fundargerð 610. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 8. júní 2023.
Fundargerðin er í tíu liðum.
13. Velferðarnefnd - 471 - 2306003F
Lögð fram til kynningar fundargerð 471. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 8. júní 2023.
Fundargerðin er í sex liðum.