510. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 510. fundar fimmtudaginn 2. mars kl. 17, í fundarsal bæjarstjórnar, á 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Streymt er frá fundinum á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar og í spilaranum neðst á þessari síðu.

Dagskrá

Almenn mál

1. Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - 2022050136
Tillaga frá forseta bæjarstjórnar um að fyrirhugaður og samþykktur fundur bæjarstjórnar fimmtudaginn 30. mars 2023, verði færður til miðvikudagsins 29. mars 2023.

2. Lánsumsókn Ísafjarðarbær 2023 - 2023020162
Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykki hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 350.000.000.-, til 16 ára, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir sveitarfélagsins og endurfjármagna afborganir eldri lána sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra, kt. 300575-5759, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess, f.h. Ísafjarðarbæjar, að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

3. Lánsumsókn hafnarsjóður 2023 - 2023020161
Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Ísafjarðarhafna hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 150.000.000 til 16 ára, með föstum 3,15,00% vöxtum, láns í lánaflokknum LSS39.
Ábyrgð þessi er veitt í samræmi við heimild í 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og að bæjarstjórn veiti Lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, ásamt vöxtum og verðbótum auk hvers kyns innheimtukostnaðar.
Lánið er tekið til að fjármagna uppbyggingu á höfn að Sundabakka í Skutulsfirði, en um 670 milljón króna heildarframkvæmd er að ræða, ríkisstyrkt um 60%, áætlað árið 2023 eru kr. 350.000.000, sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Þá er lagt til að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar skuldbindi hér með sveitarfélagið sem eiganda Ísafjarðarhafna til að selja ekki eignarhlut sinn til einkaaðila, í heild eða að hluta, fram til þess tíma að lán þetta er að fullu greitt. Fari svo að Ísafjarðarbær selji eignarhlut í Ísafjarðarhöfnum til annarra opinberra aðila, skuldbindur Ísafjarðarbær sig til þess að tryggja að samhliða yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er lagt til að Örnu Láru Jónsdóttur, kt. 300575-5759, verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að samþykkja, f.h. Ísafjarðarbæjar, veitingu ofangreindrar ábyrgðar og veðsetningar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu ábyrgðar þessarar.

4. Vallargata 1, Þingeyri - Gramsverslun - 2021110022
Tillaga frá 1232. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 27. febrúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki afsal vegna Gramsverslunar, Vallargötu 1 á Þingeyri, til Fasteignafélagsins Þingeyri ehf.

5. Aðalstræti 40 á Þingeyri. Minnkun lóðar - 2023010281
Tillaga frá 603. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 23. febrúar, um að bæjarstjórn samþykki breytt lóðarmörk fyrir Aðalstræti 40 á Þingeyri.

6. Ósk um stofnun lóðar að Vallargötu 25, Þingeyri - 2022120071
Tillaga frá 603. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 23. febrúar, um að bæjarstjórn samþykki að stofnuð verði lóð við Vallargötu 25 á Þingeyri, sem síðan verði auglýst á lóðalista sveitarfélagsins til úthlutunar.

7. Urðarvegur 47 á Ísafirði. Ósk um lóðarleigusamning - 2023020093
Tillaga frá 603. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 23. febrúar, um að bæjarstjórn samþykki útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Urðarveg 47 á Ísafirði, í samræmi við framlögð gögn.

8. Innritunarreglur leikskóla Ísafjarðarbæjar - 2023020087
Tillaga bæjarstjóra, í kjölfar 449. fundar fræðslunefndar, sem haldinn var 23. febrúar, um að bæjarstjórn samþykki reglur um innritun og dvöl barna í leikskólum Ísafjarðarbæjar.

Fundargerðir til kynningar

9. Bæjarráð - 1232 - 2302015F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1232. fundur bæjarráðs, en fundur var haldinn 27. febrúar 2023.
Fundargerðin er í tólf liðum.

10. Fræðslunefnd - 449 - 2302009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 449. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 23. febrúar 2023.
Fundargerðin er í fimm liðum.

11. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 603 - 2302011F
Lögð fram til kynningar fundargerð 603. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 23. febrúar 2023.
Fundargerðin er í ellefu liðum.