505. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 505. fundar síns miðvikudaginn 28. desember klukkan 10:00, í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Beint streymi er af fundinum á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar og í spilaranum neðst í fréttinni.

Dagskrá

Almenn mál

1. Álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda 2023 - 2022090089
Tillaga frá 1224. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 19. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki að útsvar Ísafjarðarbæjar árið 2023 verði hækkað um 0,22% stig og verði þannig 14,74%, með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16. desember 2022, enda lækkar tekjuskattur einstaklinga um sama hlutfall í báðum skattþrepum.

2. Umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni - 2022090010
Tillaga frá 1224. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 19. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki uppfærðan samning um umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni, auk verklagsreglna, en um er að ræða breytingar sem gerðar voru af umdæmissveitarfélaginu Akureyrarbæ, í kjölfar fyrri samþykktar bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í september 2022.

3. Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu - 2022120121
Með hliðsjón af leiðbeiningum innviðaráðuneytisins um ófullnægjandi upplýsingar um breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar leggur forseti til endurupptöku á síðari umræðu sem fram fór á 504. fundi bæjarstjórnar, þann 15. desember 2022.
Forseti leggur því fram til síðari umræðu og samþykktar uppfært skjal um breytingar á samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar, sbr. viðauka 1.1. um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Ísafjarðarbæjar.

4. Reglur Ísafjarðarbæjar um félagslegt leiguhúsnæði - 2022120052
Tillaga frá 467. fundi velferðarnefndar, sem haldinn var 12. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki nýjar reglur um útleigu félagslegra íbúða, þó með þeim breytingum að fellt verði út ákvæði í 22. gr. um að greiða skuli tryggingu við útleigu íbúða hjá þeim einstaklingum sem leigja húsnæði á félagslegum forsendum.

5. Nýjar reglur um afslátt af leikskólagjöldum - 2022120057
Tillaga frá 448. fundi fræðslunefndar sem haldinn var þann 22. desember 2022 um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur er varða afslátt á dagvistargjöldum í leikskólum Ísafjarðarbæjar. Fræðslunefnd lagði til breytingar á drögum á umræddum reglum þannig að tekjuviðmið miðist við heimili, óháð sambúðarformi.

6. Gjaldskrár 2023 - 2022050015
Tillaga frá 467. fundi velferðarnefndar, sem haldinn var 12. desember 2022, um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur um afslátt af fasteignagjöldum fyrir elli- og örorkulífeyrisþega.

7. Gjaldskrár 2023 - 2022050015
Tillaga frá 448. fundi fræðslunefndar sem haldinn var þann 22. desember 2022 um að bæjarstjórn samþykki breytingar á gjaldskrám fyrir árið 2023.
Inn í gjaldskrá fyrir skólamat komi fram að hafragrautur sé í boði fyrir 7.-10. bekk. Jafnframt verði sett inn verð fyrir skólamat í öllum grunnskólum í sveitarfélaginu.
Inn í gjaldskrá fyrir leikskóla og dagforeldra verði gerðar breytingar á tekjuviðmiði vegna afsláttar af leikskólagjöldum. Aðeins verði eitt tekjuviðmið á heimili óháð sambúðarformi og það verði allt að kr. 750.000 á mánuði eða kr. 9.000.000 á ári.

8. Nefndarmenn 2022-2026 - 2022050135
Tillaga bæjarfulltrúa Í-lista um að Gunnar Jónsson verði kosinn varamaður Í-lista í velferðarnefnd, í stað Gauja Más Þorsteinssonar.

Fundargerðir til kynningar

9. Velferðarnefnd - 467 - 2212012F
Lögð fram til kynningar fundargerð 467. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 12. desember 2022.
Fundargerðin er í fimm liðum.

10. Hafnarstjórn - 236 - 2212008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 236. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 20. desember 2022.
Fundargerðin er í fjórum liðum.

11. Fræðslunefnd - 448 - 2212017F
Lögð fram til kynningar fundargerð 448. fundar fræðslunefndar, en fundur var haldinn 22. desember 2022.
Fundargerðin er í fjórum liðum.