493. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 493. fundar síns fimmtudaginn 7. apríl kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu.

Beint streymi af fundi má finna hér á síðunni fyrir neðan fundardagskrá.

Dagskrá

Almenn mál

1. Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2021 - 2022010041
Bæjarstjóri leggur fram til fyrri umræðu ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2021.

2. Lánsumsókn til Ofanflóðasjóðs 2022 v. 2019-2021 - 2022030101
Tillaga frá 1193. fundi bæjarráðs, sem fram fór 28. mars 2022, um að bæjarstjórn samþykki að veita bæjarstjóra heimild til að sækja um lán frá Ofanflóðasjóði alls að fjárhæð kr. 30.000.000, vegna kostnaðar við ofanflóðavarnir á árunum 2019-2021, auk hluta af áætlaðri lántöku ársins 2022.

3. Menningarstefna Ísafjarðarbæjar - 2021050083
Tillaga frá 162. fundi menningarmálanefndar, sem fram fór 28. mars 2022, um að bæjarstjórn samþykki menningarstefnu Ísafjarðarbæjar 2022-2032.

4. Framtíð og rekstur Edinborgarhússins - 2017100071
Tillaga frá 1194. fundi bæjarráðs, sem fram fór 4. apríl 2022, um að bæjarstjórn samþykki að veita styrk til Edinborgarhússins til ráðningar rekstrar- og viðburðastjóra vegna ársins 2022, og er miðað við laun skv. framlögðum gögnum. Fjárhæð styrks mun taka mið af tímasetningu ráðningar.
Jafnframt lögð fram tillaga bæjarstjóra um að samþykkja viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2022, en áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu er lækkun rekstrarafgangs um kr. 7.500.000.

5. Snjómokstur á Flateyri, Suðureyri og Þingeyri - þjónustusamningur 2019-2021 - 2018100087
Tillaga frá 1194. fundi bæjarráðs, sem fram fór 4. apríl 2022, um að bæjarstjórn samþykki að samið verði við verktaka um snjómokstur á Flateyri, Suðureyri og Þingeyri um framlengingu samninga til tveggja ára.

6. Ásgeirsgata 3, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021120013
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Ásgeirsgötu 3 L138082, Ísafirði skv. gildandi deiliskipulagi.

7. Bakki, Önundarfirði. Umsókn um stofnun lóðar út úr Koti L140999 - 2021110036
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili uppskipti jarðarinnar Kots í Önundarfirði skv. umsókn.

8. Breiðadalur - Tengivirki - 2021010004
Tillaga frá 579. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 16. mars 2022, um að bæjarstjórn samþykki deiliskipulag tengivirkis í Breiðadal.

9. Brekka á Ingjaldssandi, framkvæmdaleyfisumsókn til að loka skurðum - 2021090060
Tillaga frá 579. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 16. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir endurheimt votlendis með uppfyllingu í skurði, sbr. umsókn.

10. Fífutunga 4, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2022020116
Tillaga frá 579. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 16. mars 2022, um að bæjarstjórn samþykki að Halldór Örn Guðmundsson og Steinunn Diljá Högnadóttir fái lóðina við Fífutungu 4, Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

11. Hlíðarvegur 2, Suðureyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2022010142
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Hlíðarveg 2, Suðureyri.

12. Hnífsdalsvegur 29 - breyting á lóðarmörkum - 2022020077
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili stækkun lóðar við Hnífsdalsveg 29, Ísafirði, og að hjallur verði skráður sem matshluti á lóðinni.

13. Landsnet - Ósk um breytingu á Aðalskipulagi vegna strenglagna í Arnarfirði - 2022030014
Tillaga frá 579. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 16. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

14. Ósk um heimild Ísafjarðarbæjar til deiliskipulagsvinnu í landi Reykjanes - 2022030094
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn óski eftir því við skipulagsyfirvöld Súðavíkurhrepps að þau heimili vinnu við deiliskipulag, vegna starfsemi Saltverks ehf.

15. Ósk um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar vegna jarðhitanýtingar við Laugar í Súgandafirði - 2022030080
Tillaga frá 579. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 16. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

16. Ósk um stofnun lóðar í landi Hóls í Firði L141006 -Bakkar - 2022030084
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili uppskipti og stofnun lóðarinnar Bakka úr landi Hóls í Firði, Önundarfirði skv. umsókn.

17. Seljalandsvegur 38, Ísafirði. Umsókn um lóðarleigusamning - 2022010140
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Seljalandsveg 38, Ísafirði.

18. Suðurtangi 6, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021120014
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Suðurtanga 6 L138767, Ísafirði skv. gildandi deiliskipulagi.

19. Suðurtangi 8, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2021120015
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu lóðarleigusamnings fyrir Suðurtanga 10 L138767, Ísafirði skv. gildandi deiliskipulagi.

20. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Götulýsing Suðurtangi - 2022030038
Tillaga frá 579. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 16. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili útgáfu framkvæmdaleyfis lagningar hitaveitulagnar og háspennustrengjar sbr. umsókn.

21. Umsókn um lóð - Mávagarður E - 2019110063
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn samþykki að Kampi ehf. fái lóðina við Mávagarð E1, Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

22. Vífilsmýrar L141032, stofnun fasteignar í Önundarfiði - Hafradalsteigur - 2021110038
Tillaga frá 580. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 23. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili uppskipti jarðarinnar Vífilsmýra, Önundarfirði skv. umsókn.

23. Vífilsmýrar L141032, stofnun fasteignar í Önundarfiði - Vífilsmýrarlóð - 2021110039
Tillaga frá 579. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 16. mars 2022, um að bæjarstjórn heimili uppskiptingu jarðarinnar Vífilsmýra sbr. umsókn.

Fundargerðir til kynningar

24. Bæjarráð - 1192 - 2203013F
Fundargerð 1192. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 21. mars 2022.
Fundargerðin er í fimm liðum.

25. Bæjarráð - 1193 - 2203017F
Fundargerð 1193. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 28. mars 2022.
Fundargerðin er í 13 liðum.

26. Bæjarráð - 1194 - 2203019F
Fundargerð 1194. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 4. apríl 2022.
Fundargerðin er í 14 liðum.

27. Fræðslunefnd - 438 - 2203014F
Fundargerð 438. fundar fræðslunefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 24. mars 2022.
Fundargerðin er í þremur liðum.

28. Menningarmálanefnd - 162 - 2203016F
Fundargerð 162. fundar menningarmálanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 28. mars 2022.
Fundargerðin er í fjórum liðum.

29. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 579 - 2202011F
Fundargerð 579. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 16. mars 2022.
Fundargerðin er í 15 liðum.

30. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 580 - 2203011F
Fundargerð 580. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 23. mars 2022.
Fundargerðin er í 17 liðum.