483. fundur bæjarstjórnar

483. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar verður haldinn fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, fimmtudaginn 4. nóvember 2021 og hefst kl. 17.00.

Beina hljóðútsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér (neðst ef síða er skoðuð í farsíma).

Dagskrá:

Almenn mál

1. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2021 - viðauki 16 - 2021030050

Tillaga frá 1173. fundi bæjarráðs, sem fram fór 25. október 2021, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 16 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2021, vegna framkvæmda, lántöku og reksturs.

2. Álagningarhlutfall útsvars og fasteignaskatta 2022 - 2021070013

Tillaga frá 1170. fundi bæjarráðs, sem fram fór 4. október 2021, um að bæjarstjórn samþykki tillögu um um að útsvar ársins 2022 verði óbreytt frá árinu 2021, eða 14,52%.

Jafnframt tillaga frá 1172. fundi bæjarráðs, sem fram fór 18. október 2021, um að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá Ísafjarðarbæjar vegna fasteignaskatta fyrir árið 2022.

3. Gjaldskrár 2022 - 2021050043

Bæjarstjóri leggur fram gjaldskrár Ísafjarðarbæjar til samþykktar. Gjaldskrár eru óbreyttar frá umræðu á 482. fundi bæjarstjórnar, þann 21. október 2021, fyrir utan gjaldskrá áhaldahúss/þjónustumiðstöðvar, hafna Ísafjarðarbæjar, velferðarsviðs, leikskóla, skíðasvæða, sundlauga og líkamsrækta, dýrahalds, tjaldsvæða og bókasafnsins á Ísafirði, þar sem breytingar hafa verið gerðar.

4. Fjárhagsáætlun 2022 - 2021040035

Bæjarstjóri leggur fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2021 fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

5. Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði. Frá Norðdalsá að Þverá við Rjúpnabeygju. - 2021100071

Tillaga frá 568. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 20. október 2021, um að bæjarstjórn heimili útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir 2. áfanga Vestfjarðarvegar um Dynjandisheiði frá Norðurdalsá að Þverá við Rjúpnabeygju.

6. Stefnisgata 10, Suðureyri. Umsókn um atvinnuhúsalóð - 2021100059

Tillaga frá 568. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 20. október 2021, um að bæjarstjórn samþykki að Vonin ehf. fái lóðina við Stefnisgötu 10, Suðureyri, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi uppdrættir ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

7. Selakirkjuból 2-4 L141050. Umsókn um uppskipti lands, Ból 2 - 2021100088

Tillaga frá 569. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 27. október 2021, um að bæjarstjórn heimili uppskiptingu lands og stofnun lóðar í landi Selakirkjubóls 2-4.

8. Selakirkjuból 2-4, Breiðadal Neðri 4 og Breiðadal 2 -Innsta Bæ. Skipulagslýsing fyrir 9 ný sumarhús - 2021100018

Tillaga frá 569. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 27. október 2021, um að bæjarstjórn heimili að skipulagslýsing verði auglýst skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

9. Breiðadalur - Tengivirki - 2021010004

Tillaga frá 569. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 27. október 2021, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð skv. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

10. Hafnarstræti 21, Þingeyri - Umsókn um stækkun byggingarreits - 2021100098

Tillaga frá 569. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór 27. október 2021, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð skv. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Fundargerðir til kynningar

11. Bæjarráð - 1173 - 2110019F

Fundargerð 1173. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 25. október 2021.

Fundargerðin er í 18 liðum.

12. Bæjarráð - 1174 - 2110024F

Fundargerð 1174. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar, en fundur varhaldinn 1. nóvember 2021.

Fundargerðin er í 10 liðum.

13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 227 - 2110012F

Fundargerð 227. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 20. október 2021.

Fundargerðin er í fjórum liðum.

14. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 568 - 2109029F

Fundargerð 568. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 20. október 2021.

Fundargerðin er í 14 liðum.

15. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 569 - 2110017F

Fundargerð 569. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 27. október 2021.

Fundargerðin er í sjö liðum.

16. Starfshópur um skipulag útivistarsvæða í Tungudal og Seljalandsdal - 11 - 2110020F

Fundargerð 11. fundar starfshóps um skipulag útivistarsvæða í Tungudal og

Seljalandsdal lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 25. október 2021.

Fundargerðin er í einum lið.