479. fundur bæjarstjórnar

479. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í gegnum fjarfundabúnað, fimmtudaginn 2. september 2021 og hefst kl. 17.00. Gestir geta mætt í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði þar sem útsending fjarfundar verður sýnd.

Beina hljóðútsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér (neðst ef síða er skoðuð í farsíma).

Dagskrá:

Almenn mál

1. Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs 2021 - 2021060010
Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki fundadagskrá bæjarstjórnar veturinn 2021-2022, í samræmi við minnisblað bæjarstjóra, dags. 31. ágúst 2021.

2. Nefndarmenn 2018-2022 - bæjarstjórn - 2018050091
Tillaga forseta bæjarstjórnar um að bæjarstjórn samþykki að varamaður Sifjar Huldar Albertsdóttur, Steinunn Guðný Einarsdóttir, taki sæti Sifjar Huldar í bæjarstjórn, en Sif Huld var veitt lausn frá störfum sínum í bæjarstjórn á 478. fundi bæjarstjórnar, þann 24. júní 2021. Þá er jafnframt lagt til að Hulda María Guðjónsdóttir taki sæti sem varamaður í bæjarstjórn, í stað Steinunnar Guðnýjar.

3. Nefndarmenn 2018-2022 - íþrótta- og tómstundanefnd - 2018050091
Tillaga forseta bæjarstjórnar um að Guðný Stefanía Stefánsdóttir verði kosin formaður og fulltrúi D-lista Sjálfstæðisflokks í íþrótta- og tómstundanefnd, í stað Sifjar Huldar Albertsdóttur. Þá verði Magðalena Jónasdóttir kosinn varafulltrúi í stað Guðnýjar Stefaníu.

4. Nefndarmenn 2018-2022 - Framtíðarskipulag á Torfnesi - 2018050091
Tillaga forseta bæjarstjórnar um að Steinunn Guðný Einarsdóttir verði kosin varafulltrúi D-lista Sjálfstæðisflokks í Starfshóp um framtíðarskipulag íþróttamannvirkja á Torfnesi, í stað Sifjar Huldar Albertsdóttur.

5. Brjóturinn, Suðureyri. Framkvæmdaleyfisbeiðni vegna landfyllingar. - 2021080006
Tillaga frá 564. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 25. ágúst 2021, um að bæjarstjórn heimili útgáfu framkvæmdaleyfis vegna landfyllingar við Brjótinn á Suðureyri í samræmi við innsend gögn og skipulagsforsendur.

6. Túngata 12, L141383 Suðureyri - 2021080013
Tillaga frá 564. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 25. ágúst 2021, um að bæjarstjórn heimili endurnýjun á lóðarleigusamningi fyrir Túngötu 12 á Suðureyri.

Fundargerðir til kynningar

7. Fræðslunefnd - 431 - 2108008F
Fundargerð 431. fundar fræðslunefndar lögð fram til kynningar, en fundur var haldinn 31. ágúst 2021.
Fundargerðin er í ellefu liðum.

8. Menningarmálanefnd - 159 - 2108012F
Fundargerð 159. fundar menningarmálanefndar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 31. ágúst 2021.
Fundargerðin er í fjórum liðum.