472. fundur bæjarstjórnar

472. fundur bæjarstjórnar verður haldinn fimmtudaginn 4. mars 2021 kl. 17, í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsi.

Beina útsendingu af fundinum má finna í spilaranum í hægri dálki hér (neðst ef síða er skoðuð í farsíma).

Dagskrá

Almenn mál

1. Efling snjóflóðavarna á Flateyri. Drög að aðgerðaráætlun - 2021020132
Tillaga frá 1143. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 1. mars 2021, um að bæjarstjórn samþykki að hafin verði vinna við tillagða fjóra kosti vegna ofanflóðavarna á Flateyri, í samræmi við minnisblað bæjarstjóra, dags. 26. febrúar 2021.

2. Endurskoðun bæjarmálasamþykktar Ísafjarðarbæjar - 2012120018
Lagðar fram til síðari umræðu breytingar á 8., 16. og 36. gr. samþykkta, auk þess sem lagt er til að nýtt ákvæði 37. gr. verði sett inn og síðari ákvæði fái nýtt númer til samræmis, sbr. uppfærða greinargerð, dags. 15. febrúar 2021 og 26. febrúar 2021.
Breytingar gerðar á 8. gr. samþykktanna frá fyrri umræðu, í samræmi við umræður á 471. fundi bæjarstjórnar, þann 18. febrúar 2021.

3. Höfði, Dýrafirði. Umsókn um stofnun lóðar úr landi L140963 - 2021020109
Tillaga frá 554. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 24. febrúar 2021, um að bæjarstjórn heimili stofnun lóðar í landi Höfða í Dýrafirði L140963.

4. Hrauntunga 1-3. Umsókn um lóð undir parhús - 2021020102
Tillaga frá 554. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 24. febrúar 2021, um að bæjarstjórn samþykki að Garðar Sigurgeirsson, f.h. Skeiðs, ehf. fái lóðirnar Hrauntunga 1 og Hrauntunga 3, Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun. Ósk um niðurfellingu á gatnargerðargjöldum er vísað til bæjarráðs.

Fundargerðir til kynningar

5. Bæjarráð - 1142 - 2102015F
Fundargerð 1142. fundar bæjarráðs sem haldinn var 22. febrúar 2021 lögð frma til kynningar.
Fundargerðin er í sex liðum.

6. Bæjarráð - 1143 - 2102021F
Fundargerð 1143. fundar bæjarráðs sem haldinn var 1. mars lögð fram til kynningar.
Fundargerðin er í nítján liðum.

7. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 554 - 2102017F
Fundargerð 554. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 24. febrúar 2021 lögð fram til kynningar.
Fundargerðin er í ellefu liðum.