423. fundur bæjarstjórnar

423. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 4. október 2018 og hefst kl. 17:00.

Dagskrá:

Almenn mál

1.  

Deiliskipulag - Eyrarskjól - 2018050049

 

Tillaga 505. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 26. september sl., um að heimila að greinargerð og uppdráttur frá Verkís dags. 26.09.2018, vegna viðbyggingar við leikskólann Eyrarskjól, verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

2.  

Ósk um lóðaleigusamning - Hjallur Skipagata, Suðureyri. - 2018060056

 

Tillaga 504. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 19. september sl., um að samþykkja að gerður verði nýr lóðarleigusamningur vegna fiskhjalls við Skipagötu 2, Suðureyri.

 

   

3.  

Umsókn um lóð - Eyrargata 11, Suðureyri - 2018090008

 

Tillaga 505. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 26. september sl., um að Sigfús Bergmann Önundarson, fái lóð við Eyrargötu 11, skv. núgildandi skipulagi og umsókn dags. 24.11.2018, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

 

   

4.  

Aðrennslissvæði Mjólkárvirkjunar - Umsókn um framkvæmdaleyfi - 2018060003

 

Tillaga 505. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 26. september sl., um að framkvæmdaleyfi verði gefið út vegna skurðar sunnan Grímsvatns, á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja og samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010

 

   

5.  

Umsókn um byggingarleyfi Dynjandi - 2018060011

 

Tillaga 503. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 29. ágúst sl., um að heimila að vikið sé frá gr. 5.8.2 í skipulagsreglugerð 90/2013, með vísan í gr. 5.8.4 vegna óverulegra frávika fyrirhugaðra byggingaframkvæmda með hliðsjón af deiliskipulagi.
Deiliskipulag, þ.e. skipulagsskilmálar svæðisins, heimila tvö salernishús að heildarstærð 25 fm. Sótt er um byggingarleyfi fyrir tveimur salernishúsum að heildarstærð 26.4 fm. og aðstöðuhúsi landvarðar þ.e. 16.2 fm þ.e. alls 42.6 fm. að heildarstærð.

Tillagan var áður tekin fyrir á 422. fundi bæjarstjórnar 19. september sl., og var afgreiðslu hennar frestað.

 

   

6.  

Samþykkt um sorpmál - 2018080026

 

Tillaga 71. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar frá 25. september sl. um að samþykkja drög að nýrri samþykkt um sorphirðu.

 

   

7.  

Þyrluflug í Hornstrandafriðlandi - 2014040048

 

Bæjarfulltrúa bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar leggja fram eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkir að senda fyrirspurn til Umhverfisstofnunar varðandi þyrluflug og þyrlulendingar í Hornstrandarfriðlandi til að fá svör og skýringar á eftirfarandi atriðum.
Hefur Ísafjarðarbæjar heimild til að banna þyrluflug og lendingar í friðlandinu t.d. í gegn um skipulag svæðisins?
Hver hefur heimild til að heimila þyrluflug og lendingar þyrlu í friðlandinu á Hornströndum?

 

   

8.  

Landtaka skemmtiferðaskipa og farþegabáta - 2014040048

 

Bæjarfulltrúa bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar leggja fram eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar heimilar ekki landtöku skemmtiferðaskipa/farþegabáta með 50 farþega eða fleiri nema á viðkenndum höfnum sveitarfélagsins.
Stefna margra skemmtiferðaskipa og þjónustuaðila þeirra fyrir árið 2020 er að sniðganga hafnir á Vestfjörðum og bjóða gestum sínum frekar að fara frá borði í Hornvík - við Hesteyri - Í Aðalvík - minni Lónafjarðar - Í Dynjandisvogi - og undir Látrabjargi. Þeir spara þá hafnargjöld og tekjur af ferðum gesta verða allar eftir um borð í stað þess að deilast út í hagkerfi sveitarfélaganna, átroðningur þessara farþega mun engu að síður eiga sér stað innan sveitarfélagsins og hafa áhrif á upplifun annarra gesta sem og landeigenda sem borga fasteignagjöld af húsum sínum.

 

   

9.  

Bæjarstjórnarfundir 2018 - 2018060018

 

Tillaga bæjarstjóra að bæjarstjórnarfundar sem áætlaður er 18. október n.k. verði felldur niður.

 

   

10.  

Sundhöll Ísafjarðar Samkeppni - 2015090052

 

Tillaga 1032. fundar bæjarráðs frá 1. október sl. um að ekki verði unnið áfram með tillögur að endurbótum á Sundhöll Ísafjarðar eins og lagt var til í samkeppni um endurbætur hennar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

11.  

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 143 - 1809023F

 

Fundargerð 143. fundar atvinnu- og menningarmálanefndar, sem haldinn var 27. september sl. Fundargerðin er í 4 liðum.

 

   

12.  

Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 159 - 1808019F

 

Fundargerð 159. fundar barnaverndarnefndar, sem haldinn var 18. september sl. Fundargerðin er í 5 liðum.

 

   

13.  

Bæjarráð - 1031 - 1809017F

 

Fundargerð 1031. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 24. september sl. Fundargerðin er í 9 liðum.

 

   

14.  

Bæjarráð - 1032 - 1809025F

 

Fundargerð 1032. fundar bæjarráðs, sem haldinn var 1. október sl. Fundargerðin er í 16 liðum.

 

   

15.  

Fræðslunefnd - 396 - 1809011F

 

Fundargerð 396. fundar fræðslunefndar, sem haldinn var 20. september sl. Fundargerðin er í 8 liðum.

 

   

16.  

Íþrótta- og tómstundanefnd - 187 - 1809013F

 

Fundargerð 187. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 19. september sl. Fundargerðin er í 1 lið.

 

   

17.  

Nefnd um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss - 3 - 1809024F

 

Fundargerð 3. fundar nefndar um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss, sem haldinn var 1. október sl. Fundargerðin er í 1 lið.

 

   

18.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 504 - 1809004F

 

Fundargerð 504. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 19. september sl. Fundargerðin er í 12 liðum.

 

   

19.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 505 - 1809019F

 

Fundargerð 505. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 26. september sl. Fundargerðin er í 4 liðum.

 

   

20.  

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 71 - 1809018F

 

Fundargerð 71. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem haldinn var 25. september sl. Fundargerðin er í 3 liðum.

 

   

 

Ísafjarðarbær, 4. október 2018

Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri.