416. fundur bæjarstjórnar
416. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 12. apríl 2018 og hefst kl. 17:00.
Dagskrá:
Almenn mál |
||
1. |
Virðisaukinn - 2013110016 |
|
Virðisaukinn, frumkvöðlaverðlaun Ísafjarðarbæjar, veitt við hátíðlega athöfn. |
||
|
||
2. |
Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2017 - 2018010095 |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir, staðgengill bæjarstjóra, leggur fram ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2017, til fyrri umræðu. |
||
|
||
3. |
Deiliskipulag - Naustahvilft - 2016100047 |
|
Tillaga 495. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 21.03.2018 lagði nefndin til við bæjarstjórn að heimila að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar dags. mars. 2018 verði auglýst skv. 1 mgr. 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og deiliskipulagstillaga og greinargerð dags. mars 2018 auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 |
||
|
||
4. |
Sandasker, Dýrafirði, - Frístundabyggð - 2016100042 |
|
Tillaga 495. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 21.03.2018 um að deiliskipulagstillaga og greinargerð dags. 24.05.2016 verði auglýst óbreytt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 |
||
|
||
5. |
Sindragata 4a - umsókn um stofnframlag. - 2016100023 |
|
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að sú leið verði farin að íbúðirnar 11 í Sindragötu 4a, sem byggðar verða með tilstuðlan stofnframlaga, verði í eigu Ísafjarðarbæjar/Fastís. |
||
|
||
6. |
Snjóbifreið á Þingeyri - 2018030076 |
|
Tillaga 1010. fundar bæjarráðs frá 19. mars sl., um að snjóbifreiðin LEITNER LH 250 verði gefin björgunarsveitinni Dýra á Þingeyri. |
||
|
||
7. |
Samstarf um barnavernd á norðanverðum Vestfjörðum. - 2017020009 |
|
Tillaga 1012. fundar bæjarráðs Ísafjarðarbæjar frá 9. apríl sl., um að samþykkja drög að samningi um samstarf um barnavernd á norðanverðum Vestfjörðum. |
||
|
||
8. |
Lýðháskóli á Flateyri - 2016110085 |
|
Tillaga 1011. fundar bæjarráðs frá 26. mars sl., um að samþykkja samning milli Ísafjarðarbæjar og Lýðháskólans á Flateyri. |
||
|
||
9. |
Tillaga um að rýna stöðu jafnréttismála hjá Ísafjarðarbæ - 2018030091 |
|
Tillaga Daníels Jakobssonar, bæjarfulltrúa, um að rýnt verð í stöðu jafnréttismála hjá Ísafjarðarbæ. |
||
|
||
10. |
Heiðursborgari Ísafjarðarbæjar - 2018040027 |
|
Kristján Andri Guðjónsson, bæjarfulltrúi, leggur fram eftirfarandi tillögu: |
||
|
||
11. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2018 - 2018020003 |
|
Lagt fram minnisblað Hjördísar Þráinsdóttur, skjalastjóra, dagsett 10. apríl sl., með yfirliti yfir frumvörp og þingsályktunartillögur sem Ísafjarðarbær hefur fengið til umsagnar frá síðasta fundi bæjarstjórnar. |
||
|
||
Fundargerðir til kynningar |
||
12. |
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 141 - 1804002F |
|
Fundargerð 141. fundar atvinnu- og menningarmálanefndar, sem haldinn var 5. apríl sl. Fundargerðin er í 3 liðum. |
||
|
||
13. |
Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 156 - 1802027F |
|
Fundargerð 156. fundar barnaverndarnefndar sem haldinn var 14. mars sl. Fundargerðin er í 4 liðum. |
||
|
||
14. |
Bæjarráð - 1010 - 1803017F |
|
Fundargerð 1010. fundar bæjarráðs sem haldinn var 19. mars sl. Fundargerðin er í 12 liðum. |
||
|
||
15. |
Bæjarráð - 1011 - 1803023F |
|
Fundargerð 1011. fundar bæjarráðs sem haldinn var 26. mars sl. Fundargerðin er í 17 liðum. |
||
|
||
16. |
Bæjarráð - 1012 - 1804004F |
|
Fundargerð 1012. fundar bæjarráðs sem haldinn var 9. apríl sl. Fundargerðin er í 21 lið. |
||
|
||
17. |
Fræðslunefnd - 390 - 1803028F |
|
Fundargerð 390. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 5. apríl sl. Fundargerðin er í 5 liðum. |
||
|
||
18. |
Hafnarstjórn - 197 - 1803025F |
|
Fundargerð 197. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 27. mars sl. Fundargerðin er í 8 liðum. |
||
|
||
19. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 495 - 1803013F |
|
Fundargerð 495. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 21. mars sl. Fundargerðin er í 6 liðum. |
||
|
||
20. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 63 - 1803016F |
|
Fundargerð 63. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 20. mars sl. Fundargerðin er í 1 lið. |
||
|
||
21. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 64 - 1803022F |
|
Fundargerð 64. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 10. apríl sl. Fundargerðin er í 3 liðum. |
||
|
||
22. |
Velferðarnefnd - 426 - 1803009F |
|
Fundargerð 426. fundar velferðarnefndar sem haldinn var 13. mars sl. Fundargerðin er í 7. liðum. |
||
|
Ísafjarðarbær, 10. apríl 2018
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.