Almenn mál
|
1.
|
Umsókn um óverulega breytingu á Aðalskipulagi 2008-2020 - 2017080052
|
|
Tillaga frá 985. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.
Á 482. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, 30. ágúst sl., lagði nefndin til við bæjarstjórn að heimila að óveruleg breyting verði gerð á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 út frá fyrirliggjandi gögnum. Magni Hreinn Jónsson vék af fundi skipulags- og mannvirkjanefndar við afgreiðslu málsins. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði tillaga skipulags- og mannvirkjanefndar um að gerð verði sú breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 að Sæborgar, í fyrrum landi Garða, verði getið í aðalskipulagi.
|
|
|
|
2.
|
Sandasker, Dýrafirði - Frístundabyggð - 2016100042
|
|
Tillaga frá 482. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, 30. ágúst sl.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila að skipulagslýsing vegna frístundahúsabyggðar í Dýrafirði verði kynnt almenningi skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umsagna óskað frá Skipulagsstofnun og öðrum stofnunum vegna deiliskipulagslýsingar.
|
|
|
|
3.
|
Aðalgata 24, Suðureyri - Umsókn um lóð - 2017080049
|
|
Tillaga 482. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, 30. ágúst sl.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Andrzej Górecki, fái lóð við Aðalgötu 24, Suðureyri, skv. núgildandi skipulagi og umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
|
|
|
|
4.
|
Æðartangi 16 - Umsókn um lóð - 2017080047
|
|
Tillaga frá 482. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, 30. ágúst sl.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Ísinn ehf. fái lóð við Æðartanga 22, skv. núgildandi skipulagi og umsókn með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
|
|
|
|
5.
|
Stefnisgata 5, Suðureyri - Umsókn um lóð - 2017080050
|
|
Tillaga frá 482. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, 30. ágúst sl.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Fisherman ehf. fái lóð við Stefnisgötu 5, Suðureyri, skv. umsókn með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
|
|
|
|
6.
|
Stefnumótun fyrir tjaldsvæði í Ísafjarðarbæ - 2017080024
|
|
Tillaga frá 51. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, 22. ágúst sl.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að stefnt verði að því að rekstur tjaldsvæða í Ísafjarðarbæ verði í höndum einkaaðila.
|
|
|
|
7.
|
Sorpmál 2018 - útboð - 2016090021
|
|
Tillaga frá 52. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, 5. september sl.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að farin verði svonefnd leið 1 þegar sorphirða og -förgun verður boðin út, en ekki leið 2 eins og nefndin hafði áður lagt til. Helsti munurinn á leiðunum felst í fjölda sorphirðudaga.
|
|
|
|
8.
|
Nefndarmenn 2014-2018 - 2014020030
|
|
Tillaga framsóknarflokks, 25. ágúst sl., um breytingu á áheyrnarfulltrúa í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Marzellíus Sveinbjörnsson, oddviti framsóknarmanna, leggur til að Ásvaldur Magnússon taki sæti Ingu Steinunnar Ólafsdóttur, sem áheyrnarfulltrúi í skipulags- og mannvirkjanefnd, þar sem Inga Sigríður hefur óskað eftir því að vera leyst frá störfum.
|
|
|
|
9.
|
Bæjarstjórnarfundir 2017 - 2017050135
|
|
Á 983. fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, 14. ágúst sl., var minnisblaði bæjarritara, með tillögum að fundartímum bæjarstjórnar veturinn 2017-2018, vísað til bæjarstjórnar.
|
|
|
|
10.
|
Staða sauðfjárbænda vegna lækkunar á afurðaverði - 2017090015
|
|
Tillaga Marzellíusar Sveinbjörnssonar, bæjarfulltrúa framsóknarflokks, að ályktun bæjarstjórnar vegna stöðu sauðfjárbænda.
"Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar lýsir áhyggjum af stöðu sauðfjárbænda á svæðinu og skorar á ríkisvaldið að standa við bakið á sauðfjárbændum í kjölfar lækkunar á afurðaverði, en fjöldi íbúa sveitarfélagsins úr hópi sauðfjárbænda horfa fram á þriðjungs lækkun á afurðaverði í haust og tekjuskerðingu í samræmi við það upp á tugi prósenta, í kjölfar nærri 10% lækkunar afurðaverðs á síðasta ári. Þessar lækkanir munu koma harkalega niður á sveitum landsins og bitna sérstaklega á yngri bændum. Sauðfjárræktin er mikilvæg í dreifðum byggðum landsins og ef stjórnvöld vilja halda byggðajafnvægi, er fátt sem kemur í hennar stað - fyrirsjáanleg byggðaröskun er því í uppsiglingu. Það er mikilvægt að hafa hraðar hendur við að finna leiðir til mótvægis meðan bændur vaða þessa brimskafla."
|
|
|
|
11.
|
Hádegissteinn í Bakkahyrnu ofan Hnífsdals - 2017080037
|
|
Tillaga Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarfulltrúa Í-lista, varðandi Hádegisstein, m.t.t. tillögu stjórnar íbúasamtaka Hnífsdals.
|
|
|
|
Fundargerðir til kynningar
|
12.
|
Bæjarráð - 985 - 1709002F
|
|
Lögð fram fundargerð 985. fundar bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, sem haldinn var 4. september sl. Fundargerðin er í 11 liðum.
|
|
|
|
13.
|
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 52 - 1709003F
|
|
Lögð fram fundargerð 52. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem haldinn var 5. september sl. Fundargerðin er í 1 lið.
|
|
|
|