392. fundur bæjarstjórnar

392. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 19. janúar 2017 og hefst kl. 17:00

 

Dagskrá:

Almenn mál

1.  

Virðisaukinn - 2013110016

 

Í upphafi fundarins fer fram afhending Virðisaukans 2016, sbr. útnefningu á 135. fundi atvinnu- og menningarmálanefndar.

     

2.  

Fremri Breiðadalur/Þverárvirkjun - Stofnun Lóðar - 2016120024

 

Lögð er fram tillaga frá 468. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að heimila stofnun lóðar í landi Fremri Breiðadals 2 landnr. 212073 skv. uppdrætti dags. 29. ágúst 2016.

     

3.  

Selakirkjuból / Kaldárvirkjun - Ósk um stofnun lóðar - 2016120026

 

Lögð er fram tillaga frá 468. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að heimila stofnun lóðar í landi Selakirkjubós landnúmer 141048 skv. uppdrætti dags. 6. september 2016.

     

4.  

Skeiði B - Umsókn um lóð - 2017010027

 

Lögð er fram tillaga frá 469. fundi skipulags- og mannvirkjanefnd þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að G.E. Vinnuvélar, fengju lóð inn á Skeiði við Götu B, Ísafirði, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða, sbr. umsókn dags. 5. janúar 2017 og meðfylgjandi uppdrætti.

     

5.  

Mávagarður Viðlegustöpull - Umsókn um framkvæmdarleyfi - 2016120059

 

Lögð er fram tillaga frá 469. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að heimiluð yrði útgáfa framkvæmdaleyfis vegna viðlegustöpuls við Mávagarð, sbr. umsókn Guðmundar M. Kristjánssonar hafnarstjóra hafna Ísafjarðarbæjar.

     

6.  

Tunguskeiði - Óveruleg breyting á deiliskipulagi. - 2017010033

 

Lögð er fram tillaga frá 469. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að gerð yrði óveruleg breyting á iðnaðaðar- og athafnalóðum í deiliskipulagi Tunguskeiðs, sem felur í sér hækkun á nýtingarstuðli upp í 1. Miðað við núverandi forsendur deiliskipulags við Tunguskeið er nýtingarhlutfall iðnaðarlóða, sem er 0,2, of lágt miðað við fyrirhugaða nýtingu á svæðinu.

     

7.  

Skólamál á Flateyri - 2016110039

 

Lögð er fram tillaga frá 958. fundi bæjarráðs þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að Trappa ehf. yrði ráðin ráðgjafi og verkefnastjóri samráðshóps leik- og grunnskóla á Flateyri.

     

8.  

Fjárhagsáætlun 2017, breyting á gjaldskrá - 2016020047

 

Lögð er fram tillaga frá 958. fundi bæjarráðs þar sem lagt var til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á verðskrá skíðasvæðisins þess efnis að mismunandi verð verði á gönguskíðum og svigskíðum í leigunni þar sem mikill munur er á hversu mikla umhirðu skíðin þurfa.

     

9.  

Fjárhagsaðstoð - 2012120016

 

Lögð er fram tillaga frá 414. fundi félagsmálanefndar um að reglur um fjárhagsaðstoð hjá Ísafjarðarbæ yrðu samþykktar.

     

10.  

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning hjá Ísafjarðarbæ. - 2016120045

 

Lögð er fram tillaga frá 414. fundi félagsmálanefndar þar sem lagt var til að reglur um sérstakan húsnæðisstuning hjá Ísafjarðarbæ yrðu samþykktar.

     

11.  

Sjókvíaeldi í ísafjarðardjúpi - Háafell - 2016020056

 

Lögð er fram tillaga forseta bæjarstjórnar um að bæjarstjórn taki undir umsögn skipulags- og mannvirkjanefndar frá 469. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem bæjarráð tók undir á 959. fundi sínum, varðandi frummatsskýrslu um allt að 6.800 tonna framleiðslu á laxi í sjókvíum á vegum Háafells í Ísafjarðardjúpi.

     

12.  

Hestamannafélagið Hending - kröfugerð vegna reiðvallar - 2016050078

 

Lögð er fram tillaga 958. fundar bæjarráðs um að bæjarstjórn samþykki drög að samkomulagi milli milli Vegagerðarinnar og Ísafjarðarbæjar um greiðslu fullnaðarbóta vegna byggingar Bolungarvíkurganga, þ.á.m. vegna skerðingar á aðstöðu Hestamannafélagsins Hendingar að Búðartúni í Hnífsdal.

     

13.  

Nefndarmenn 2014-2018 - 2014020030

 

Lögð er fram tillaga bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins þess efnis að Guðfinna Hreiðarsdóttir taki sæti Ásgerðar Þorleifsdóttur í skipulags- og mannvirkjanefnd, breytingin tekur gildi frá og með 1. febrúar n.k.

     

Fundargerðir til kynningar

14.  

Bæjarráð - 957 - 1612014F

 

Fundargerð 957. fundar bæjarráðs sem haldinn var 19. desember sl., fundargerðin er í 11 liðum.

     

15.  

Bæjarráð - 958 - 1701006F

 

Fundargerð 958. fundar bæjarráðs sem haldinn var 19. desember sl., fundargerðin er í 11 liðum.

     

16.  

Bæjarráð - 959 - 1701012F

 

Fundargerð 959. fundar bæjarráðs sem haldinn var 16. janúar sl., fundargerðin er í 13 liðum.

     

17.  

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 135 - 1612010F

 

Fundargerð 135. fundar atvinnu- og menningarmálanefndar sem haldinn var 14. desember sl. Fundargerðin er í 4 liðum.

     

18.  

Félagsmálanefnd - 413 - 1612015F

 

Fundargerð 413. fundar félagsmálanefndar, sem haldinn var 20. desember sl. Fundargerðin er í 6 liðum.

     

19.  

Félagsmálanefnd - 414 - 1612018F

 

Fundargerð 414. fundar félagsmálanefndar, sem haldinn var 29. desember sl. Fundargerðin er í 3 liðum.

     

20.  

Fræðslunefnd - 375 - 1612006F

 

Fundargerð 375. fundar fræðslunefndar, sem haldinn var 15. desember sl. Fundargerðin er í 5 liðum.

     

21.  

Íþrótta- og tómstundanefnd - 174 - 1701009F

 

Fundargerð 174. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn 17. janúar sl., fundargerðin er í 4 liðum.

     

22.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 468 - 1612012F

 

Fundargerð 468. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 21. desember sl. Fundargerðin er í 7 liðum.

     

23.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 469 - 1701001F

 

Fundargerð 469. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 11. janúar sl., fundargerðin er í 7 liðum.

     

24.  

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 38 - 1612003F

 

Fundargerð 38. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem haldinn var 20. desember sl. Fundargerðin er í 2 liðum.

     

25.  

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 39 - 1701005F

 

Fundargerð 39. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 10. janúar sl., fundargerð er í 2 liðum.

     

 

Ísafjarðarbær, 17. janúar 2017

Gísli Halldór Halldórsson,

bæjarstjóri