389. fundur bæjarstjórnar

389. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 17. nóvember 2016 og hefst kl. 17:00. 

 

Dagskrá:

 

Almenn mál

1.  

Ósk um deiliskipulagsbreytingu og hugsanlega Aðalskipulagsbreytingu við afrennslissvæði Mjólkárvirkjana - 2016080019

 

Skipulags- og mannvirkjanefnd lagði til við bæjarstjórn á 465. fundi sínum að heimila að skipulags- og matslýsing verði kynnt opinberlega skv. skipulagslögum 123/2010. Matslýsingin verði tekin til meðferðar í samræmi við VII. og VIII. kafla skipulagslaga nr. 123/2010

 

   

2.  

Skeiði Gata B - Umsókn um lóð - 2016110025

 

Skipulags- og mannvirkjanefnd lagði til við bæjarstjórn á 465. fundi sínum að AB Fasteignir. fengi lóð inn á Skeiði við Götu B, Ísafirði skv. uppdrætti með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

 

   

3.  

Stígamót - styrkbeiðni - 2016090015

 

Á 412. fundi félagsmálanefndar kom fram að nefndin telur vera mikla þörf fyrir þjónustu Stígamóta í sveitarfélaginu og leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki styrkbeiðni Stígamóta.

 

   

Fundargerðir til kynningar

4.  

Bæjarráð - 951 - 1611005F

 

Fundargerð 951. fundar bæjarráðs sem haldinn var 7. nóvember sl., fundargerðin er í 13 liðum.

 

   

5.  

Bæjarráð - 952 - 1611009F

 

Fundargerð 952. fundar bæjarráðs sem haldinn var 14. nóvember sl., fundargerðin er í 15 liðum.

 

   

6.  

Félagsmálanefnd - 412 - 1610022F

 

Fundargerð 412. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 1. nóvember sl., fundargerðin er í 8 liðum.

 

   

7.  

Fræðslunefnd - 373 - 1610016F

 

Fundargerð 373. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 4. nóvember sl., fundargerðin er í 3 liðum.

 

   

8.  

Íþrótta- og tómstundanefnd - 173 - 1611006F

 

Fundargerð 173. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 9. nóvember sl., fundargerðin er í 4 liðum.

 

   

9.  

Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 6 - 1611007F

 

Fundargerð 6. fundar nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu sem haldinn var 11. nóvember sl., fundargerðin er í 2 liðum.

 

   

10.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 465 - 1610021F

 

Fundargerð 465. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 9. nóvember sl., fundargerðin er í 10 liðum.

 

   

11.  

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 36 - 1610019F

 

Fundargerð 36. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 1. nóvember sl., fundargerðin er í 2 liðum.

 

   

 

Ísafjarðarbær, 16. nóvember 2016

 

Gísli Halldór Halldórsson,

 bæjarstjóri.