386. fundur bæjarstjórnar

386. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, 6. október 2016 og hefst kl. 17:00

 

 Dagskrá:

 

Almenn mál

 

1.  

Mávagarður A - Umsókn um lóð - 2016090054

 

Á 462. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar lagði nefndin til við bæjarstjórn úthlutun á lóð A við Mávagarð.

 

   

2.  

Smárateigur 2 - Umsókn um lóð - 2016090056

 

Á 462. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar lagði nefndin til við bæjarstjórn úthlutun á lóð við Smárateig 2 með fyrirvara um samþykki frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

 

   

3.  

Núpsskóli - uppskipting lóðar - 2016040064

 

461. fundur skipulags- og mannvirkjanefndar lagði til við bæjarstjórn að lóðir 1, 2, 3, 4 og 5 yrðu stofnaðar vupp úr landi Núpsskóla í Dýrafirði með landnúmerið 140979 samkvæmt uppdrætti Plan 21 ehf.

 

   

4.  

Kaup Landsbankans á eigin hlutum - 2016090052

 

945. fundur bæjarráðs lagði til við bæjarstjórn að Ísafjarðarbær selji hluti sína í Landsbankanum hf. og feli bæjarstjóra að ganga frá sölunni.

 

   

5.  

Starfshópur um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa - 2016090040

 

Tillaga Daníels Jakobssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Marzellíusar Sveinbjörnssonar, bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins og Kristjáns Andra Guðjónssonar, bæjarfulltrúa Í-listans, um að stofnaður verði starfshópur um framtíðarskipan skemmtiferðaskipakoma.

 

   

6.  

6. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036

 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.

 

   

7.  

7. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036

 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 7. viðauki sé samþykktur.

 

   

8.  

8. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036

 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 8. viðauki sé samþykktur.

 

   

9.  

9. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036

 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 9. viðauki sé samþykktur.

 

   

10.  

10. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036

 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 10. viðauki sé samþykktur.

 

   

11.  

Breytingar á íþrótta- og tómstundanefnd - 2014020030

 

Tillaga Í-listans um breytingu á íþrótta- og tómstundanefnd.

 

   

Fundargerðir til kynningar

12.  

Bæjarráð - 944 - 1609013F

 

Fundargerð 944. fundar bæjarráðs sem haldinn var 19. september sl., fundargerðin er í 7 liðum.

 

   

13.  

Bæjarráð - 945 - 1609019F

 

Fundargerð 945. fundar bæjarráðs sem haldinn var 26. september sl., fundargerðin er í 18 liðum.

 

   

14.  

Bæjarráð - 946 - 1609024F

 

Fundargerð 946. fundar bæjarráðs sem haldinn var 4. október sl., fundargerðin er í 5 liðum.

 

   

15.  

Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 146 - 1609009F

 

Fundargerð 146. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum sem haldinn var 20. september sl., fundargerðin er í 2 liðum.

 

   

16.  

Félagsmálanefnd - 411 - 1609014F

 

Fundargerð 411. fundar félgsmálanefndar sem haldinn var 20. september sl., fundargerðin er í 7 liðum.

 

   

17.  

Skipulags- og mannvirkjanefnd - 462 - 1609015F

 

fundargerð 462. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 21. september sl., fundargerðin er í 7 liðum.

 

   

 

 

Ísafjarðarbær, 4. október 2016

 

Gísli Halldór Halldórsson,

 bæjarstjóri.