Velferðarnefnd

364. fundur 10. janúar 2012 kl. 16:00 - 18:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 364. fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Jón Reynir Sigurðsson boðaði forföll vegna veðurs og jafnframt varamaður hans Edda B. Magnúsdóttir. Rannveig Þorvaldsdóttir boðaði einnig forföll og í hennar stað mætti Helga Björk Jóhannsdóttir.
Ari Klængur Jónsson mætti til fundarins undir þessum lið og vék af fundi að umræðu lokinni.

1.Jafnréttisáætlun. - 2010050008

Lögð fram fyrstu drög að jafnréttisáætlun fyrir Ísafjarðarbæ.

Lagt fram til kynningar og Ara Klæng Jónssyni og starfsfólki fjölskyldusviðs falið að vinna áfram að stefnunni.

2.Trúnaðarmál. - 2011090094

3.Stefnumótun félagsmálanefndar (og starfsmarkmið) - 2007120001

Lagðar fram starfsáætlanir ársins 2012 fyrir þjónustueiningar á fjölskyldusviði og skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs um starfsmarkmið ársins 2011.

Félagsmálanefnd samþykkir starfsáætlanir fjölskyldusviðs fyrir sitt leyti. Rætt um að vinna við jafnréttisáætlun verði sett undir starfsmarkmið fjölskyldusviðs.

 

Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fór yfir skýrslu um starfsmarkmið fjölskyldusviðs 2011.

 

Við endurskoðun stefnu félagsmálanefndar í félags- og velferðarmálum leggur félagsmálanefnd til að skýrsla sviðsstjóra skuli liggja fyrir á fyrsta fundi nefndarinnar ár hvert.

4.Undanþága vegna fjölda barna í daggæslu. - 2012010012

Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur daggæslufulltrúa Ísafjarðarbæjar dags. 6. janúar s.l. þar sem Ólöf Árnný Öfjörð dagforeldri sækir um undanþágu frá dagvistunarreglum um fjölda barna.

Félagsmálanefnd hafnar erindinu á grundvelli reglugerðarinnar.

5.Skammtímavistun. - 2011120022

Lögð fram greinargerð sviðsstjóra fjölskyldusviðs um Skammtímavistun.

Félagsmálanefnd samþykkir á grundvelli greinargerðarinnar að skammtímavistun verði áfram til húsa að Sindragötu 4 á meðan leitað er að hentugra húsnæði. Jafnframt samþykkir félagsmálanefnd að leitað verði til velferðarráðuneytisins, eiganda að húsnæðinu, um fjármagn til að fara í endurbætur á baðherbergi skammtímavistunar.

6.Starfsmannahandbók. - 2012010013

Lögð fram starfsmannahandbók fyrir fjölskyldusvið Ísafjarðarbæjar.

Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir verkefnahóps BSVest. - 2011090092

Lögð fram fundargerð 14. fundar verkefnahóps Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks.

Lagt fram til kynningar.

Önnur mál.
A)Lagt fram bréf frá Sólstöfum Vestfjarða dagsett 29. desember 2011, þar sem óskað er eftir styrk frá Ísafjarðarbæ, til að styðja við samtökin í verkefnum sínum. Óskað er eftir styrk að fjárhæð kr. 100.000,-.

Félagsmálanefnd samþykkir að veita Sólstöfum styrk að fjárhæð kr. 50.000,-.


B

Fundi slitið - kl. 18:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?