Velferðarnefnd

395. fundur 03. mars 2015 kl. 12:00 - 14:20 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir formaður
  • Guðný Harpa Henrysdóttir varaformaður
  • Aron Guðmundsson aðalmaður
  • Hildur Elísabet Pétursdóttir aðalmaður
  • Steinþór Bragason aðalmaður
  • Kristjana Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sædís María Jónatansdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
  • Hafdís Gunnarsdóttir ráðgjafi á fjölskyldusviði
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þóra Marý Arnórsdóttir deildarstjóri fötlunarþjónustu
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 395. fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Sólveig S. Guðnadóttir, áheyrnarfulltrúi boðaði forföll, en í hennar stað mætti Kristjana Sigurðardóttir.
Aron Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu máls nr. 2014100069.

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Trúnaðarmál lögð fram í félagsmálanefnd.
Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Húsaleigubætur 2015 - 2014090006

Lögð fram yfirlit yfir greiðslur Ísafjarðarbæjar vegna almennra húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta fjárhagsárið 2014. Yfirlitin eru staðfest af sviðsstjóra fjölskyldusviðs og löggiltum endurskoðanda Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar.
Hafdís Gunnarsdóttir vék af fundi.

3.Notendastýrð persónuleg aðstoð fyrir fatlað fólk - 2014110066

Lagt fram bréf dags. 21. nóvember 2014 frá Sif Huld Albertsdóttur, verkefnastjóra Byggðasamlags Vestfjarða, ásamt drögum að reglum Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks varðandi þjónustuformið notendastýrð persónuleg aðstoð fyrir fatlað fólk (NPA). Óskað er eftir umsögn félagsmálanefndar um reglurnar.
Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemdir við efnislegt innihald reglnanna og leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að reglurnar verði samþykktar. Félagsmálanefnd bendir á að skýra þarf orðalag þegar fjallað er um verkefnahóp, teymi fagfólks og félagsþjónustusvæði.

4.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2015 - 2015020078

Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 20. febrúar s.l. þar sem allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (breyting ýmissa laga), 466. mál.
Lagt fram til kynningar. Félagsmálanefnd hefur ekki athugasemdir við frumvarpið.

5.Fundargerðir verkefnahóps BSVest. - 2011090092

Lögð fram fundargerð 44. fundar verkefnahóps BsVest.
Fundargerð lögð fram til kynningar og umræður um fundargerðina.

6.Fundargerðir stjórnar BSVest. - 2015030003

Lagðar fram fundargerðir stjórnar BsVest frá 2. og 23. febrúar 2015.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar og umræður um fundargerðirnar.
Kristjana Sigurðardóttir og Þóra Marý Arnórsdóttir viku af fundi.

7.Fundargerðir 2010-2013 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði - 2010070042

Lagðar fram fundargerðir nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði frá 41. og 42. fundi.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar og umræður um fundargerðirnar.

Fundi slitið - kl. 14:20.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?