Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
371. fundur 01. september 2016 kl. 08:10 - 08:40 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björk Elíasdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Guðrún Birgisdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi Ísafjarðarbæjar
Dagskrá
Fundinn sátu undir grunnskólamálum, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjórnenda. Undir málefnum leikskóla sátu fundinn Helga Björk Jóhannsdóttir, fulltrúi skólastjórnenda, Bryndís Gunnarsdóttir sem fulltrúi starfsfólks og Sif Huld Albertsdóttir sem fulltrúi foreldra grunn- og leikskólabarna.

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og stöðu þeirra.

2.Læsisstefna Ísafjarðarbæjar - 2016080050

Lögð fram drög að læsisstefnu Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar.

3.Öryggishandbók leik- og grunnskóla - 2016080062

Lögð fram drög að handbók um velferð og öryggi barna í leik- og grunnskólum Ísafjarðarbæjar.
Lagt fram til kynningar.

4.Félag stjórnenda leikskóla - 2016080058

Lagðar fram ályktanir frá samráðsfundi Félags stjórnenda leikskóla.
Lagt fram til kynningar.

5.Ósk um að hafa lokað 24. og 31. des. - 2015110003

Lokun leikskóla Ísafjarðarbæjar 24. og 31. desember.
Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar vill árétta að falli 24. og 31. desember á virka daga skuli leikskólar bæjarins vera opnir til hádegis nema til komi sérstök samþykkt fræðslunefndar hverju sinni, samið hafi verið við foreldra um slíka lokun eða þeir séu tilgreindir sem starfsdagar og lokað þess vegna.

Fundi slitið - kl. 08:40.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?