Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 3. fundur - 25. september 2014

Dagskrá:

1.

2014090049 - Við stólum á þig - umhverfisvænt söfnunarátak

 

Á 854. fundi bæjarráðs þann 22. september sl. var erindi Péturs Sigurgunnarssonar, framkvæmdastjóra söfnunarinnar Við stólum á þig, dags. 15. september 2014, vísað til nefndar um umhverfis- og framkvæmdamál.

 
 

Nefnd um umhverfis- og framkvæmdamál telur þetta gott og þarft verkefni en sér sér ekki fært að styrkja það að svo stöddu þar sem slík styrkveiting rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar þessa árs.


Kristín Hálfdánsdóttir vék af fundi.

 

                                     

2.

2011120009 - Hjúkrunarheimili á Ísafirði

                                 
 

Á 38. fundi nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði óskaði nefndin eftir hönnun lóðarinnar við hjúkrunarheimilið Eyri yrði kynnt á næsta fundi nefndar um umhverfis- og framkvæmdamál.

                                 
 

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að verkið "Frágangur lóðar" við Hjúkrunarheimilið Eyri verði boðið út.
Nefndin bendir á að hafa þarf í huga gr. 13 myndlistarlaga nr. 64/2012 sem fjallar um listaverk í opinberum byggingum og á útisvæðum.

                                 

 

                                     

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:15

 

Nanný Arna Guðmundsdóttir

 

Gunnar Jónsson

Kristín Hálfdánsdóttir

 

Jóna Símonía Bjarnadóttir

Jóhann Birkir Helgason

 

 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?