Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
916. fundur 01. febrúar 2016 kl. 08:05 - 09:12 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048

Umræður um snjóflóðavarnir undir Kubba.
Umræður fóru fram í kjölfar íbúafundar sem haldinn var 28. janúar sl. vegna snjóflóðavarna undir Kubba.

2.Fjármál Ísafjarðarbæjar - mánaðarskýrslur 2016-2017 - 2016010080

Lagt er fram minnisblað Helgu Ásgeirsdóttur, staðgengils fjármálastjóra, dags. 29. janúar sl., með yfirliti yfir rekstur til og með nóvember 2015 og skatttekjur og laun til og með desember 2015.
Lagt fram til kynningar.
Helga Ásgeirsdóttir yfirgefur fundinn.

Gestir

  • Helga Ásgeirsdóttir, fjármáladeild - mæting: 08:43

3.Atvinnuþróunarverkefni Atvest og Ísafjarðarbær - 2010080057

Lögð er fram tillaga Shirans Þórissonar, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, dags. 29. janúar sl., um nýtingu fjármuna samkvæmt samningi milli Ísafjarðarbæjar og Atvest um atvinnuþróunarverkefni árið 2016.
Bæjarráð vísar málinu til atvinnu- og menningarmálanefndar.

4.Asahláka í febrúar 2015 - vatnsflóð, lærdómsskýrsla, verksamningur við VSÓ ráðgjöf - 2015020033

Lögð eru fram drög að lærdómsskýrslu vegna flóðanna á Ísafirði í febrúar 2015 til umsagnar og til birtingar á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, til að gefa tækifæri til athugasemda.
Bæjarráð vísar lærdómsskýrslunni til umfjöllunar í skipulags- og mannvirkjanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd ásamt því að setja hana fram á heimasíðu Ísafjarðarbæjar til kynningar og athugasemda íbúa.

5.Þróunar og starfsmenntunarsjóður, endurskoðun - 2015110072

Lögð eru fram ný drög að nýjum reglum þróunar- og starfsmenntunarsjóðs og reglum um stuðning við starfsmenn Ísafjarðarbæjar sem stunda fjarnám.
Lagt fram til kynningar.

6.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027

Lagt er fram til umsagnar frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbaki o.fl., 13. mál.
Lagt fram til kynningar.

7.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 449 - 1601014F

Fundargerð 449. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 27. janúar sl., fundargerðin er í 10 liðum.
Lagt fram til kynningar.

8.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 24 - 1512014F

Fundargerð 24. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 26. janúar sl., fundargerðin er í 3 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:12.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?