Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
898. fundur 14. september 2015 kl. 08:05 - 08:52 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, var fjarverandi.

1.Kauptilboð í 103 íbúðir í eigu FastÍs - 2015070031

Lagt er fram kauptilboð óstofnaðs hlutafélags á 103 íbúðum í eigu Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf., dags. 2. september sl.
Bæjarráð hafnar tilboðinu.

2.Fundur vegna innleiðingar laga um verndarsvæði í byggð - 2015090021

Lagt er fram bréf Sigurðar Arnar Guðleifssonar og Regínu Sigurðardóttur, f.h. forsætisráðuneytisins, dags. 3. september sl., með boð á kynningarfund á lögum um verndarsvæði í byggð sem haldinn verður á Ísafirði mánudaginn 21. september n.k. kl. 10:00 í Stjórnsýsluhúsinu.
Bæjarráð hvetur alla bæjarfulltrúa og aðra áhugasama að mæta.

3.Byggðakvóti fiskveiðiárið 2015/2016 - 2015090027

Lagt er fram bréf Hinriks Greipssonar og Jóhanns Guðmundssonar f.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, dags. 2. september sl., með auglýsingu eftir umsóknum um byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.

4.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, fundargerðir, ársreikingar o.ff. - 2015050017

Lagt er fram fundarboð ársfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem haldinn verður 25. september n.k. kl. 13:30 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli.
Bæjarráð tilnefnir Gísla Halldór Halldórsson til að mæta til fundarins.

5.Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2015 - 2015090039

Lagt er fram fundarboð Elínar Pálsdóttur og Ragnhildar Hjaltadóttur, á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður 23. september n.k. kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, mætir fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.

6.Styrkir til félaga- og félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum 2015 - 2015030028

Lagt er fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, með tillögu að afgreiðslu umsókna um styrki til félaga og félagasamtaka 2015.
Í ljósi þess að reglum var breytt varðandi frest til umsókna um styrki til félaga og félagasamtaka 2015 er veitt undanþága frá þeim tímamörkum sem þar eru tilgreindar að þessu sinni. Umsókn Njálu, frímúrarastúku er því samþykkt.

7.Strandblakvellir í Tungudal - umsókn um framkvæmdaleyfi - 2015060080

Lagður er fram tölvupóstur Gunnars Páls Eydal, dags. 10. september sl., með beiðni um aðkomu Ísafjarðarbæjar að gerð strandblaksvallarins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna samninginn áfram með blakfélaginu Skelli.

8.Alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle 2015 - 2015090041

Lagt er fram boðsbréf á alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle sem haldið verður í Hörpu, Reykjavík, 16.-18. október n.k.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundur sveitastjórnar með fjárlaganefnd 2015 - 2015090042

Lagt er fram boð fjárlaganefndar Alþingis um fund fjárlaganefndar með fulltrúum sveitarfélagsins og/eða landshlutasamtaka vegna fjárlagafrumvarps fyrir árið 2016.
Lagt fram til kynningar.

10.Tillaga um að Ísafjarðarbær kaupi íbúðir á Hlíf I - 2015080081

Lögð er fram tillaga Marzellíusar Sveinbjörnssonar, bæjarfulltrúa að umorðaðri tillögu til bæjarstjórnar um kaup á íbúðum að Hlíf I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við tillöguna. Tillagan verður að nýju lögð fyrir bæjarstjórn.

11.Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 11. september sl., varðandi forsendur við vinnslu fjárhagsáætlunar árið 2016.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framkomnar forsendur.

12.Fundargerð Framkvæmdasýslu ríkisins vegna Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla. - 2013030023

Lögð er fram fundargerð Framkvæmdasýslu ríkisins vegna ofanflóðavarna á Ísafirði, byggðar neðan Gleiðarhjalla sem haldinn var 3. september sl.
Lögð til kynningar.

13.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 441 - 1507009F

Lögð er fram fundargerð 441. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 9. september sl., fundargerðin er í 12 liðum.
Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 08:52.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?