Bæjarráð

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
855. fundur 29. september 2014 kl. 08:15 - 10:15 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir formaður
  • Kristján Andri Guðjónsson aðalmaður
  • Daníel Jakobsson aðalmaður
  • Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Lokanir á leikskólum 24. og 31. desember 2014 - 2014050104

Lagt er fram bréf Sifjar Huldar Albertsdóttur, f.h. foreldrafélags Sólborgar, dags. 11. september sl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

2.Samb.ísl.sveitarf. - Ýmis erindi 2014-2015 - 2014010071

Lagt er fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dags. 1. september sl., vegna tilnefninga í stjórnarnefnd Þjóðskjalasafns.
Lagt fram til kynningar.

3.Gangstétt í Miðtúni - 2014090063

Lagt er fram minnisblað Jóhanns Birkis Helgasonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 26. september sl. vegna gangstéttar í Miðtúni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna málið betur.

4.Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna - 2014090031

Lagt er fram minnisblað Jóhanns Birkis Helgasonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 26. september sl., vegna akstursstefnu í Aðalgötu, Suðureyri.
Bæjarráð beinir því til skipulags- og mannvirkjanefndar að skoða kosti og galla þess að breyta götunni í tvístefnugötu og setja málið í forgang.

5.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Lagt er fram Minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 25. september sl. með greiningu á tekjustofnum sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
Edda María Hagalín, fjármálastjóri, mætti til fundarins undir þessum lið kl. 08:50.

6.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Lögð eru fram drög að yfirliti Fasteignagjalda 2015, af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 26. september sl.
Lagt fram til kynningar.

7.Verkferlar stjórnsýslusviðs - 2014090036

Lögð eru fram drög að umsókn og reglum af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 26. september sl., um styrki til félaga og félagasamtaka
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að reglunum.

8.Verkferlar stjórnsýslusviðs - 2014090036

Lögð eru fram drög að umsókn og reglum af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 26. september sl., um lækkun fasteignaskatts fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að reglunum.

9.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Lögð eru fram drög að áætlun 2015-2018 af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 26. september sl.
Lagt fram til kynningar.

10.Grunnskólinn á Ísafirði 2012-2014 - 2012030090

Lagður er fram viðauki nr. 20 af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 10. september sl.
Bæjarráð leggur til að viðauki verði lagður fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

11.Mánaðaryfirlit 2014 - 2014090065

Lögð eru fram drög að mánaðaráætlun 31.8.14 af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 26.9.14
Lagt fram til kynningar.

12.Díoxínmengun - bótakröfur o.fl. - 2011040059

Trúnaðarmál
Trúnaðarmál rætt og fært í trúnaðarmálabók bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.

13.Fundargerð nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis 22/9 - 2014080051

Fundargerð 39. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði.
Lögð fram til kynningar.

14.Nefnd um umhverfis- og framkvæmdamál 25/9 - 1409014F

Fundargerð 3. fundar nefndar um umhverfis- og framkvæmdamál.
Lögð fram til kynningar.

15.Skipulags- og mannvirkjanefnd 25/9 - 1409005F

Fundargerð 419. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar.
Lögð fram til kynningar.

16.Fundargerðir Fjórðungssambands Vestfirðinga 2014/2015 - 2014090054

Lögð er fram fundargerð Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 20. september sl.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar tekur undir eftirfarandi áskorun Fjórðungssambands Vestfirðinga:
"Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga beinir því til stjórnvalda að ljúka án frekari tafa undirbúningi og ákvarðanatöku, svo hægt sé að hefja lagningu nýs láglendisvegar um Gufudalssveit (Vestfjarðavegur 60). Stjórn Fjórðungssambandsins telur í þeim efnum, algjörlega óásættanlegt að tefja málið með því að kæra það til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þessi framkvæmd er grundvallaratriði fyrir öryggi vegfarenda og eflingu byggðar á Vestfjörðum og má ekki dragast meira en þegar er raunin.
Sú óvissa sem uppi hefur verið um framkvæmdina síðustu árin er óþolandi, rétt eins og sú staðreynd að Vestfirðingar njóta enn ekki þeirra sjálfsögðu réttinda að byggðir séu tengdar saman og við hringveginn með nútímalegum heilsársvegum. Það er krafa Vestfirðinga að það muni ekki bitna á öðrum nauðsynlegum samgönguverkefnum á Vestfjörðum, ef verkefnið verður kostnaðarsamara en að hefur verið stefnt hingað til."

17.Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2014 - 2014090057

Lagt er fram fundarboð til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2014, sem haldinn verður 8. október n.k. kl. 16:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.

18.Endurskoðun bæjarmálasamþykktar Ísafjarðarbæjar - 2012120018

Lögð eru fram drög að breyttum samþykktum Ísafjarðarbæjar í kjölfar breytinga á nefndum sem fram fóru eftir kosningar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

19.Byggðakvóti fiskveiðiárið 2014/2015 - 2014090033

Lagt er fram bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 2. september, þar sem byggðakvóti fiskveiðiársins 2014/2015 er auglýstur til umsóknar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015.

20.Skrúður 2014-2015 - 2014090051

Lagt er fram bréf Brynjólfs Jónssonar, formanns, f.h. stjórnar Framkvæmdasjóðs Skrúðs, dags. 17. september sl. þar sem óskað er eftir hækkun á rekstrarstyrk vegna ársins 2015.
Bæjarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?