Staða framkvæmda vegna myglu í Grunnskólanum á Ísafirði
Hér eru birtar fréttir af útboðum og framkvæmdum sem í gangi eru hjá Ísafjarðarbæ.
Hægt er að skoða staðsetningu framkvæmda inni á Kortasjá Ísafjarðarbæjar með því að haka í „Framkvæmdir“.
Hér verður birt yfirlit yfir þau útboð sem eru í gangi á vegum og/eða tengd Ísafjarðarbæ.
Upplýsingar um útboðin hverfa af vefnum þegar tilboðsfrestur rennur út eða eftir atvikum þegar tilboð hafa verið opnuð.
Eins og fram hefur komið greindist mygla í þremur kennslustofum Grunnskólans á Ísafirði í byrjun maí sl. Þegar myglugreining lá fyrir var hafist handa við að rýma umræddar stofur og nemendum og kennurum fundin önnur pláss til að klára skólaárið. Í minnisblaði frá Axel Rodriguez Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, kemur fram að í framhaldinu voru menguð byggingarefni hreinsuð, t.a.m. múr, einangrun og lögn í gólf að innan, ásamt því að veggir að utan voru hreinsaðir með háþrýstiþvotti og laus múr fjarlægður. Rýmin voru innsigluð með plasti og útsogi komið fyrir í stofum til þess að mynda undirþrýsting í álmunni svo mygluagnir myndu ekki berast um skólann.
Í minnisblaðinu kemur einnig fram að eftir að byggingarhlutar voru opnaðir hafi sú ályktun verið dregin að frágangur við smíði skólans hafi ekki verið skv. þeim kröfum sem gerðar eru í dag, a.m.k. ekki m.t.t. frágangs við steypu og járnabindingu. Á meðfylgjandi mynd sést hvernig járnabinding hefur ekki verið nægjanlega djúpt í steypunni og víða staðið upp úr og hulin með múrkápu. Raki hefur komist að járnum og oxun hafist, sem í framhaldi hefur valdið þenslu og sprengt múrinn.
Umfang skemmda er töluvert og fyrirséð að skipta þarf út öllum gluggum og glerjum í bæði á suður og norðurgafli. Ástand barnaskólans að utan er slæmt, víða má sjá sprungur, eldri viðgerðir og það sem hefur verið áhlaðandi síðustu ár. Til þess að koma mannvirkinu í viðunandi ástand er talið grundvallaratriði að þétta húsið að utan.
Helstu forgangsmál eru að:
- Fjarlægja ónýta glugga og gler
- Fara í steypuviðgerðir m.t.t. járnabindingar
- Þétta sprungur að utan og innan
- Endurnýja gler og glugga
- Múra hús að utan
- Skipta út gólfdúkum
Minnisblaðið var lagt fyrir bæjarráð á 1199. fundi og óskað eftir heimild ráðsins að vinna málið áfram. Í bókun bæjarráðs kemur fram að bæjarstjóra var falið að vinna málið áfram í samræmi við minnisblaðið sem og að vinna kostnaðaráætlun og leggja fyrir bæjarráð.