Velferðarnefnd

482. fundur 12. nóvember 2024 kl. 15:00 - 16:25 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Þórir Guðmundsson formaður
  • Gerður Ágústa Sigmundsdóttir aðalmaður
  • Dagný Finnbjörnsdóttir aðalmaður
  • Finney Rakel Árnadóttir aðalmaður
  • Auður Helga Ólafsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Fundargerð ritaði: Harpa Stefánsdóttir deildarstjóri félagsþjónustu
Dagskrá
Jóhanna Gréta Hafsteinsdóttir ráðgjafi á velferðarsviði sat fundinn.

1.Endurskoðun reglna um ferliþjónustu 2024 - 2024020101

Lögð fram drög að reglum Ísafjarðarbæjar um akstursþjónustu ásamt minnisblaði deildarstjóra um breytingar á reglum um akstursþjónustu.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að samþykkja nýjar reglur um akstursþjónustu.

2.Endurskoðun - Reglur um fjárhagsaðstoð í Ísafjarðarbæ. - 2024030106

Lögð fram drög að reglum Ísafjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð. Ásamt minnisblaði um reglur um fjárhagsaðstoð.
Samþykkt að halda áfram vinnu við gerð reglna Ísafjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð.

3.Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta árið 2025 - 2024110020

Lagt fram bréf til sveitarfélaganna frá Stígamótum dagsett 30. október 2024, þar sem samtökin óska eftir framlagi til starfsemi Stígamóta árið 2025.
Velferðarnefnd vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2025.

4.Sóknaráætlun Vestfjarða 2025-2029 - 2024100046

Á 1299. fundi bæjarráðs, þann 14. október 2024, var lagður fram til kynningar tölvupóstur Magneu Garðarsdóttir fyrir hönd Vestfjarðarstofu, dags. 9. október 2024, þar sem bent er á að drög að Sóknaráætlun Vestfjarða 2025-2029 hefur verið sett inn á samráðsgátt til umsagnar. Umsagnarfrestur er til og með 24. október 2024.

Bæjarráð vísaði málinu til umsagnar í menningarmálanefnd, umhverfis- og framkvæmdanefnd, skipulags- og mannvirkjanefnd, velferðarnefnd og skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd.

Bæjarráð áréttar að Sóknaráætlun Vestfjarða 2025-2029 verður til umræðu á Fjórðungsþingi Vestfirðinga 18.-19. október 2024.
Velferðarnefnd mun ekki skila áliti þar sem frestur til þess er liðinn.

5.Mál til umsagnar frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis - 2024110027

Lögð fram til kynningar tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar og hjúkrunarrýmum.
Velferðarnefnd mun ekki skila umsögn um málið.

6.Mál til umsagnar frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis - 2024110027

Lagt fram til kynningar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999.
Velferðarnefnd mun ekki skila umsögn um málið.

Fundi slitið - kl. 16:25.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?