Umhverfis- og framkvæmdanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Aðalskipulagsfundur. Sameiginlegur með skipulags- og mannvirkjanefnd.
Steinunn Guðný Einarsdóttir varaformaður, Aðalsteinn Egill Traustason aðalmaður og Magnús Einar Magnússon aðalmaður sátu fundinn um fjarfundabúnað.
1.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2020-2032 - 2020070011
Sameiginlegur vinnufundur með skipulags- og mannvirkjanefnd vegna aðalskipulagsvinnunnar.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd lýsir yfir vonbrigðum með vinnu ráðgjafa við heildarendurskoðun Aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2008 -2020. Framkvæmd hefur tafist úr hófi og er nú langt á eftir áætlun. Nefndin telur að um forsendubrest á samningi sé að ræða.
Nefndin telur m.a. óásættanlegt að enn sé unnið að gagnaöflun skv. lið 2 í tímaáætlun útboðsgagna og að þær hæfiskröfur sem settar voru fram í útboðinu séu ekki uppfylltar.
Sviðsstjóra er falið að funda með ráðgjafa og kalla eftir úrbótaáætlun sem liggi fyrir innan tveggja vikna svo hægt sé taka ákvörðun um hvort samningi verði rift.

Fundi slitið - kl. 10:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?