Starfshópur um málefni leikskóla
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Málefni leikskóla 2023 - 2023090036
Lagt fram erindisbréf starfshóps um skipulag og starfsumhverfi í leikskólum Ísafjarðarbæjar og farið yfir meginmarkmið starfshópsins.
Lagt fram til kynningar.
2.Starfshópur um skipulag og starfsumhverfi í leikskólum Ísafjarðarbæjar 2024. - 2024010134
Kynnt minnisblað Guðrúnar Birgisdóttur skóla- og sérkennslufulltrúa dagsett 6. febrúar 2024 er varðar þróun leikskólamála í öðrum sveitafélögum.
Starfsmönnum starfshópsins falið að senda út könnun til foreldra leikskólabarna þar sem óskað er eftir þeirra hugmyndum að breytingum á starfsumhverfi leikskóla. Jafnframt að afla upplýsinga um raun nýtingu dvalartíma á leikskólum.
Fulltrúar starfhópsins ætla kynna sér tillögur frá öðrum sveitarfélögum fyrir næsta fund.
Fulltrúar starfhópsins ætla kynna sér tillögur frá öðrum sveitarfélögum fyrir næsta fund.
Fundi slitið - kl. 15:30.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?