Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Asahláka í febrúar 2015 - vatnsflóð, lærdómsskýrsla, verksamningur við VSÓ ráðgjöf - 2015020033
Á 916. fundi bæjarráðs voru lögð fram drög að lærdómsskýrslu vegna flóðanna á Ísafirði í febrúar 2015, bæjarráð vísaði skýrslunni til umfjöllunar í skipulags- og mannvirkjanefnd. Minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs dags. 7. mars 2015 lagt fram.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur undir það sem fram kemur í minnisblaði sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs og óskar eftir að fá skýrsluna lagða fyrir nefndina þegar hún er tilbúin til umfjöllunar.
2.Sundhöll Ísafjarðar samkeppni - 2015090052
Drög að keppnislýsingu fyrir samkeppni um endurbætur og útiaðstöðu fyrir Sundhöll Ísafjarðar til umsagnar.
Drög að keppnislýsingu rædd og skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
3.Bakki í Brekkudal - umsókn um framkvæmdaleyfi - 2015110077
Vestinvest ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á Bakka í Brekkudal í Dýrafirði skv. drögum að samningi um þátttöku í landshlutaverkefni í skógrækt.
Erindinu var vísað til umsagnar Umhverfisstofnunar en umsögn barst með bréfi dags. 18. janúar 2016 og til umhverfis- og framkvæmdanefndar sem tók málið fyrir á 24. fundi nefndarinnar 26. janúar 2016. Lagt fram bréf Skjólskóga á Vestfjörðum dags. 19. febrúar 2016.
Erindinu var vísað til umsagnar Umhverfisstofnunar en umsögn barst með bréfi dags. 18. janúar 2016 og til umhverfis- og framkvæmdanefndar sem tók málið fyrir á 24. fundi nefndarinnar 26. janúar 2016. Lagt fram bréf Skjólskóga á Vestfjörðum dags. 19. febrúar 2016.
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir framkvæmdir á skilgeindu landbúnaðarsvæði og fjarlægð frá árbakka skv. gildandi aðalskipulagi. Skógrækt innan hverfisverndarsvæðis er hafnað þar sem hún fer gegn markmiðum í gildandi aðalskipulagi, en þar kemur fram að hverfisverndinni er ætlað að varðveita sérkenni svæðanna. Umsögn Fiskistofu þarf að liggja fyrir áður en framkvæmdaleyfi er veitt.
4.Dagverðardalur 1. Umsókn um stækkun lóðar - 2016010055
Björn Stefán Hallsson sækir um stækkun lóðarinnar Dagverðardalur 1, skv. meðfylgjandi uppdrætti. Umsóknin var grenndarkynnt. Ein athugasemd barst, bréf dags. 03.03.2016.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að umsókn um stækkun lóðar verði samþykkt og að þinglýst verði kvöð um aðgengi ábúanda Fagrahvamms að hliði í samræmi við framkomnar athugasemdir.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
5.Mávagarður C - umsókn um lóð - 2014120069
Vestfirskir verktakar sækja um endurnýjun á lóðarumsókn fyrir lóðina Mávagarður C skv. gildandi deiliskipulagi. Umsókn dags. 15. janúar 2015. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðaumsóknin verði samþykkt með þeim skilmálum sem eru í gildi.
6.Mávagarður B - Umsókn um lóð - 2016010041
Vestfirskir verktakar sækja um lóðina Mávagarður B skv. gildandi deiliskipulagi. Umsókn dags. 15. janúar 2015. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðaumsóknin verði samþykkt með þeim skilmálum sem eru í gildi.
7.Stekkjargata 21 - beiðni um umsögn - 2016020075
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða óskar eftir umsögn skipulags- og mannvirkjanefndar um starfsskilyrði varðandi lóðina Stekkjargötu 21 í Hnífsdal, bréf dags. 18. febrúar 2016.
Afgreiðslu frestað.
8.Aukin framleiðsla á laxi í Arnarfirði - 2016020071
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögu að matsáætlun fyrir aukningu á framleiðslu á laxi í Arnarfirði um 7.500 tonn.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu að matsáætlun enda samræmist hún nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð.
9.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 10 - 1602024F
Fundargerð 10. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa sem haldinn var 25. febrúar sl., fundargerðin er í 2 liðum
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:20.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?