Skipulags- og mannvirkjanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Heimabær II, Hesteyri - kæra byggingarleyfis. - 2013050069
Lagður fram úrskurður umhverfis- og auðlindamála dags. 31. október 2014 vegna breytinga á húsinu Heimabær II, Hesteyri, Jökulfjörðum, Ísafjarðarbæ.
Jafnframt lagður fram tölupóstur frá Sævari Þór Geirssyni dags. 18. nóvember 2014 þar sem spurt er hvernig Ísafjarðarbær hyggst fylgja úrskurðinum eftir og hver sé væntanlegur tengiliður hjá Ísafjarðarbæ vegna væntanlegrar skaðabótakröfu.

Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn bæjarlögmanns á erindinu.
2.Skrúður á Núpi í Dýrafirði - breyting á deiliskipulagi - 2014110004
Lagt fram bréf frá Framkvæmdasjóði Skrúðs dags. í nóvember 2014 ásamt deiliskipulagsuppdrætti þar sem óskað er eftir að tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði tekin til efnislegrar afgreiðslu.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst.
3.Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna - 2014090031
Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar Ísafjarðarbæjar frá 27. janúar 1999. 5. liður Aðalskipulag Suðureyrar 1983-2003, hvernig hægt er að tryggja aðkomu flutningabíla út á brjót.
Lagt fram til kynningar. Nefndin óskar eftir umsögn hverfisráðs Suðureyrar á erindinu.
4.Hámarkshraði í Pollgötu og Krók - 2014110033
Lagður fram tölvupóstur Daníels Jakobssonar, þar sem hann leggur til að skipulags- og mannvirkjanefnd skoði kosti og galla þess að hækka hámarkshraða í Pollgötu og Krók í allt að 50 km/klst.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Jafnframt lagt fram minnisblað frá Jóhanni Birki Helgasyni, sviðsstjóra.
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Jafnframt lagt fram minnisblað frá Jóhanni Birki Helgasyni, sviðsstjóra.
Skipulags- og mannvirkjanefnd skoðaði erindið með hliðsjón af minnisblaði frá Jóhanni Birki dags. 24. nóv. 2014, um slysatíðni, og samband umferðahraða við banaslys á gangandi vegfarendum.
Fram kemur í umræddu minnisblaði að átta sinnum meiri líkur eru á banaslysi á gangandi vegfarendum við umferðahraða sem er 50km/klst á móti 30km/klst. Umferðaöryggisáætlun fyrir Ísafjarðarbæ er nýlega samþykkt og væri það verulega á skjön við þá áætlun að hækka umferðahraða á þeim götubútum sem nefndir eru. Hækkun umferðahraða á áður nefndum stöðum mun stytta ferðatíma um þær um 20-30 sekúndur á hvern bíl.
Skipulags- og mannvirkjanefnd getur ekki mælt með að þessi tillaga komi til framkvæmda.

5.Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, 305. mál - umsagnarbeiðni - 2014110034
Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur 12. nóvember sl., þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum.
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir alvarlegar athugasemdir við grein 9c. Nefndin telur að virða þurfi skipulagsvald sveitarfélaga.
6.Lagning raflína, 321. mál, tillaga til þingsályktunar - umsagnarbeiðni - 2014110035
Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur 12. nóvember sl., þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda í lagningu raflína.
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
7.Frumvarp til breytinga á vegalögum - 2014110036
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 13. nóvember sl., og frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, dagsettur 14. nóvember sl., og varða breytingu á vegalögum.
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
8.Sjókvíaeldi HG í Ísafjarðardjúpi (framhaldsmál) - 2014040016
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 17. nóvember 2014 þar sem óskað er umsagnar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar sbr. 22. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að fjallað sé nægilega vel um alla þá liði sem fram koma í 22. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 og gerir því ekki athugasemdir við frummatsskýrsluna.
9.Sjókvíaeldi Dýrfisks ehf. - 2012030012
Lagt er fram til kynningar bréf Rúnar Kristinsdóttur og Vals Klemenssonar, f.h. Skipulagsstofnunar, dags. 14. nóvembeer sl., varðandi framleiðslu á 4.000 tonnum af regnbogasilungi í Borgarfirði, Trostanfirði og Lækjarbót - ákvörðun um tillögu að matsáætlun.
Lagt fram til kynningar.
10.Deiliskipulag - Mjósund - 2014090004
Teknar fyrir umsagnir vegna lýsingar deiliskipulags fyrir Mjósund, Ísafirði.
Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, Samgöngustofu, Minjastofnun Íslands, Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni. Engar athugasemdir bárust frá almenningi.
Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, Samgöngustofu, Minjastofnun Íslands, Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni. Engar athugasemdir bárust frá almenningi.
Skipulags- og mannvirkjanefnd þakkar þeim aðilum sem sendu inn athugasemdir við deiliskipulagslýsinguna og vísar þeim inn í skipulagsvinnuna.
11.Aðalstræti 7 Ísafirði (Edinborgarhús), skýli fyrir sorpkör - 2014110059
Lagt fram bréf frá Tækniþjónustu Vestfjarða fyrir hönd eigada húseignarinnar Aðalstræti 7, Ísafirði dags. 18. nóvember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að staðsetja skýli fyrir sorpkör neðan við lóð Aðalstrætis 8, Ísafirði.
Skipulags- og mannvirkjanefnd hafnar framkominni tillögu. Nefndin felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara um aðrar lausnir.
12.Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting. - 2013060014
Tekið fyrir að nýju breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020.
Umsagnafrestur vegna lýsingar rann út 13. nóvember sl., athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Ragnheiður Hákonardóttir
Guðmundur Ásvaldsson
Guðmundur Einarsson
Gunnlaugur Finnbogason
Halla Signý Kristjánsdóttir
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir
Aðalsteinn Bjarnason
Umsagnir hafa borist frá eftirtöldum aðilum:
Skipulagsstofnun
Umhverfisstofnun
Orkustofnun
Samgöngustofa
Landsnet
Orkubú Vestfjarða
Íbúasamtökin Átak
Félag Skorar, félag landeigenda í fyrrum Grunnavíkurhreppi
Erindunum vísað til úrvinnslu í aðalskipulagsvinnu.

13.Lóðamörk milli Hafnarstrætis 18 og Mjallargötu 4 - 2014060065
Lagt fram bréf eigenda fasteignarinnar við Hafnarstræti 18, Ísafirði dags. 22. nóvember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að girða á lóðamörkum Hafnarstrætis 18 og gangstéttar við Hafnarstræti 18.
Skipulags- og mannvirkjanefnd harmar hvað afgreiðsla erindisins hefur tekið langann tíma. Af hálfu nefndarinnar er fullur skilningur á áhuga eigenda Hafnarstrætis 18 á að fegra lóðina og koma henni í notkun. Þeim áhuga ber að fagna og sannarlega er sá áhugi til eftirbreytni.
Að mati nefndarmanna væri æskilegasta niðurstaðan í þessu máli sú, að lóðin yrði stækkuð til norðurs, ekki eingöngu ef horft er til kostnaðar, heldur ekki síður að með þeim hætti fá íbúar Hafnarstrætis 18 betri lóð og heppilegra útivistarsvæði. Viðræður við lóðahafa í Mjallargötu 4 hafa hinsvegar ekki enn skilað árangri.
Áhugi er fyrir að skoða málið betur, en til vara leggur nefndin til að fyrirhuguð girðing fyrir norðan og sunnan Hafnarstræti 18, verði kynnt fyrir þeim sem málið varðar.

Fundi slitið - kl. 10:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?