Íþrótta- og tómstundanefnd
1.Umsókn um afnot af 3. hæð Sundhallar á Ísafirði - 2012010044
Lagt fram bréf frá Golfklúbbi Ísafjarðar dagsett 20. janúar s.l. þar sem óskað er eftir því að fá 3. hæð Sundhallar Ísafjarðar til afnota undir æfingaraðstöðu.
Nefndini lýst vel á hugmyndir Golfklúbbsins en þær gætu orðið golfíþróttinni til framdráttar.
2.Útfærsla á hagræðingu í íþróttamannvirkjum Ísafjarðarbæjar - 2012020023
Lagðar fram tillögur að opnunartímum íþróttamannvirkja sumarið 2012 og veturinn 2012-2013.
Lagt fram til kynningar.
3.Ýmis erindi 2012 - Ungmennafélag Íslands - 2012010006
Lagt fram bréf frá Ungmennafélagi Íslands, dagsett 3. janúar s.l., þar sem óskað er eftir því
við sveitarfélög að þau veiti hópum sem eru í íþróttakeppnum afsláttarkjör af gistingu í
skólahúsnæði viðkomandi sveitarfélags.
Nefndin er jákvæð fyrir því að íþróttahópar fái gistingu á viðráðanlegu verði í skólahúsnæði en leggur áherslu á að fræslunefnd fái málið til umsagnar.
4.Útboð á rekstri skíðasvæða í Ísafjarðarbæ. - 2012010029
Lagt fram bréf Jóhanns B. Helgasonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs dagsett 16. janúar sl. Bréfið varðar drög að útboðsgögnum fyrir rekstur á skíðasvæði Ísafjarðarbæjar í Tungudal og á Seljalandsdal, Ísafirði.
Nefndin telur að útboð á rekstri svæðisins verði því ekki til hagsbóta. Betur verði að skoða þann möguleiki að hafa á svæðinu svæðisstjóra hluta úr ári sem er ábyrgur fyrir því og hefur það í fyrsta sæti þann hluta úr árinu sem hann sinnir starfi svæðisstjóra. Nefndin vísar í bókun nefndarinnar frá 127. fundi sínum þar sem lýst var áhyggjum af svæðinu.
Úr fundarggerð 127. fundar íþrótta- og tómstundarnefndar
a) Gauti Geirsson lýsti yfir áhyggjum af skíðasvæðinu. Ekki hefur verið ráðinn svæðisstjóri eins og áætlað var en mjög mikilvægt er að á svæðinu sé einhver sem áhuga hefur á svæðinu og er vakinn og sofinn yfir því. Viðkomandi þarf að vinna samkvæmt veðurspá og ná að fanga þann snjó sem mögulegt er. Mikið er af dýrum búnaði á svæðinu sem fara verður vel með. Mjög illa var gengið frá í sumar þegar enginn virtist bera ábyrgð á svæðinu.
Fulltrúar meirihlutans hvetja bæjarstjórn til að endurskoða þá ákvörðun að ráða ekki svæðisstjóra á skíðasvæðið.
5.Stefnumótun í íþrótta- og tómstundamálum Ísafjarðarbæjar - 2011030095
Lögð fram vinnugögn vegna stefnumótunar í íþrótta- og tómstundamálum
Ísafjarðarbæjar.
Ákveðið að fresta málinu til næsta fundar. Gert ráð fyrir vinnufundi 22. febrúar n.k.
a) Hermann V. Jósefsson spurðist fyrir um hvar mál HSV er varðar rekstur á Torfnessvæðinu sé statt og óskar eftir því að málið komi til umfjöllunar nefndarinnar áður en ákvörðun verður tekin.
Fundi slitið - kl. 18:00.