Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
3. fundur 30. október 2024 kl. 08:30 - 10:00 í fjarfundarbúnaði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
  • Edda María Hagalín fjármálastjóri
  • Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri
  • Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri
  • Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá

1.Búseta - 2024090077

Lögð fram greinargerð vegna umsóknar um búsetuþjónustu. Sviðs- og félagsmálastjórar leggja til við framkvæmdaráð að umsóknin verði samþykkt.
Málinu frestað til næsta fundar.

2.Búseta - 2024090078

Lögð fram greinargerð vegna umsóknar um búsetuþjónustu. Sviðs- og félagsmálastjóra leggja til við framkvæmdaráð að umsóknin verði samþykkt.
Málinu frestað til næsta fundar.

3.Bakvaktir í barnaverndarþjónustu á Vestfjörðum - 2024070073

Lagt fyrir minnisblað sviðs- og félagsmálastjóra á Vestfjörðum þar sem lögð er til fjölgun yfirvinnutíma í bakvakt úr 17,5 tímum á viku í 20 tíma á viku.
Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða samþykkir tillöguna.

4.Greiðslufyrirkomulag til aðildarsveitarfélaga - 2024070073

Lagt fram erindi frá Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur, sveitarstjóra, fyrir hönd Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps. Óskað er eftir að félagsþjónustusvæðin fái greitt framlag frá Velferðarþjónustu Vestfjarða fyrir hvern mánuð í lok þess mánaðar.
Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða telur rétt að bíða eftir að uppgjöri BsVest ljúki. Gert er ráð fyrir að vinnu við það ljúki fljótlega. Vonir standa til að niðurstöður uppgjörsins skapi svigrúm til þess að greiða mánaðarleg framlög fyrirfram.

5.Ráðgjöf og stjórnun 2025 - 2024070073

Lagt fram skjal með tillögum sviðs- og félagsmálastjóra um skiptingu ráðgjafar og stjórnunar á milli félagsþjónustusvæðanna.
Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða samþykkir tillöguna.

6.Velferðarþjónusta Vestfjarða - fjárhagsáætlun 2025 - 2024070073

Lagt fram vinnuskjal með drögum að rammaáætlun 2025 fyrir Velferðarþjónustu Vestfjarða.
Lagt fram til kynningar.

7.Viðauki við fjárhagsáætlun 2024 frá Ströndum og Reykhólum - 2024070072

Lagður fram viðauki frá Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla. Viðaukinn er vegna aukins kostnaðar vegna rangrar fjárhagsáætlunar fyrir skammtímavistun á Reykhólum árið 2024. Jafnframt vegna stoðþjónustu innan heimilis, umfram grunnþjónustu.
Framkvæmdaráð Velferðarþjónustu Vestfjarða samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og leggur til við hlutaðeigandi bæjar- og sveitarstjórnir að gera slíkt hið sama.

8.Greinargerð frá FSR vegna aukningar þjónustu í skammtímadvöl - 2024070073

Lögð fram greinargerð frá Félagsþjónustu Stranda og Reykhóla vegna aukningar á þjónustu í skammtímavistun á Reykhólum. Jafnframt lögð fram launaáætlun vegna aukningarinnar.
Málinu frestað til næsta fundar.

9.Velferðarþjónusta Vestfjarða - 2022100128

Samningur um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum lagður fram vegna endurskoðunarákvæða í samningnum.
Málinu frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?