Fræðslunefnd
1.Fréttabréf - 2012030049
Lagt fram til kynningar.
2.Skóladagatöl 2012-2013 - 2012040035
Fræðslunefnd samþykkir skóladagatal Grunnskólans á Ísafirði fyrir skólaárið 2012-2013.
3.Skýrslur grunnskóla 2012 - 2012010077
Fræðslunefnd þakkar fyrir vandaða skýrslu.
4.Skólamötuneyti - 2012040037
Lagt fram til kynningar.
5.Niðurgreiðsla til dagmæðra - 2012040036
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að skoða möguleikann á því að auka í 80.000 kr. niðurgreiðslu til dagforeldra með börnum sem eru orðin 18. mánaða og eru á biðlista eftir leikskólaplássi en hafa ekki fengið pláss. Hafni forráðamaður leikskólaplássi falli viðbótarniðurgreiðslan niður. Einnig mætti skoða möguleikann á þvi að hækka niðurgreiðslu barna eldri en 15 mánaða um 50%.
6.5 vikna sumarlokun - 2012030054
Fræðslunefnd lagði ríka áherslu á það að sá tími sem allir leikskólarnir væru lokaðir yrði ekki lengri en tvær vikur, einmitt af þeim ástæðum sem nefndar eru í bréfi foreldra. Því miður tókst hinsvegar ekki að finna lausn á því máli og því varð það niðurstaðan að þessi sameiginlegi lokunartími er þrjár vikur. Foreldrum verður boðið að senda börn sín milli leikskóla þær vikur sem sumarlokanir skólanna skarast ekki, ef þörf krefur. Ef aðsókn verður mikil eftir þessu úrræði neyðist Ísafjarðarbær til þess að forgangsraða umsóknum. Fræðslunefnd mun taka þetta fyrirkomulag til gagngerrar endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.
Fundi slitið - kl. 16:00.
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskólamál: Magnús S. Jónsson, fulltrúi skólastjóra. Martha Lilja Marthensdóttir Olsen fulltrúi foreldra mætti ekki og mætti Thelma Hjalt