Fræðslunefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Martha Kristín Pálmadóttir boðaði forföll og Sif Huld Albertsdóttir mætti í hennar stað. Þá sátu fundinn, undir grunnskólamálum, Bryndís Birgisdóttir og Árný Herbertsdóttir sem fulltrúar kennara. Undir málefnum leikskóla sátu fundinn Helga Björk Jóhannsdóttir fulltrúi skólastjórnenda og Bryndís Jónsdóttir fulltrúi foreldra.
1.Fréttabréf grunnskóla 2015-2016 - 2015090015
Lagt fram til kynningar fréttabréf Grunnskóla Önundarfjarðar og Grunnskólans á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.
2.Trúnaðarmál - 2011120043
Lagt fram eitt trúnaðarmál.
Eitt trúnaðarmál tekið fyrir sem fært var til bókar í trúnaðarmálabók og geymt í trúnaðarmálamöppu fræðslunefndar.
3.Ársskýrslur 2014-2015 - 2015090003
Lagðar fram ársskýrslur 2014-2015 frá leikskólunum Tjarnarbæ og Eyrarskjóli.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 08:40.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?