Fræðslunefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Beiðni um aukið stöðugildi við Grænagarð - 2011100094
Lagt fram bréf dagsett 28. október 2011, frá Sigurlínu Jónasdóttur, leikskólafulltrúa, þar sem óskað er eftir aukningu um 0,5 stöðugildi við leikskólann Grænagarð, vegna fjölgunar barna í skólanum.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarstjórn að beiðnin verði samþykkt og bendir á að ekki eru starfandi dagforeldrar á Flateyri.
2.Yfirlit yfir skyldur og ábyrgð skólanefnda - 2011100091
Lagðar fram leiðbeiningar um yfirlit og skyldur skólanefnda vegna leikskóla. Þar sem dregin er fram sú ábyrgð og þær skyldur sem sveitarfélög og skólanefndir bera samkvæmt nýjum lögum um leikskóla í þeim tilgangi að efla skólanefndir í hlutverki sínu. Samantektina gerði Björk Ólafsdóttir hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
3.Innra mat leikskóla og grunnskóla, leiðbeiningar og viðmið fyrir sveitarfélög - 2011100090
Lagðar fram leiðbeiningar og viðmið fyrir sveitarfélög
í tengslum við innra mat leikskóla. Þessu riti er ætlað að vera leiðarvísir fyrir nefndina eða aðila á hennar vegum við að sannreyna að innra mat leikskólans sé framkvæmt á viðunandi hátt og niðurstöður þess séu nýttar til umbóta.
Samantektina gerði Björk Ólafsdóttir hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

4.Fjárhagsáætlun 2012 og þriggja ára áætlun - 2011080013
Lagt fram minnisblað frá Sigurlínu Jónasdóttir, daggæslufulltrúa, þar sem farið er yfir niðurgreiðslur Ísafjarðarbæjar til dagforeldra.
Fræðslunefnd óskar eftir frekari kostnaðargreiningu.
5.Skýrslur, áætlanir og niðurstöður á mati skólanna. - 2011070015
Lagðar fram starfsáætlanir Grunnskólans á Ísafirði, Grunnskólans á Þingeyri og Gunnskóla Suðureyrar, fyrir 2011-2012.
Lagt fram til kynningar.
6.Yfirlit yfir skyldur og ábyrgð skólanefnda - 2011100091
Lagðar fram leiðbeiningar um yfirlit og skyldur skólanefnda vegna grunnskóla. Þar sem dregin er fram sú ábyrgð og þær skyldur sem sveitarfélög og skólanefndir bera samkvæmt nýjum lögum um grunnskóla í þeim tilgangi að efla skólanefndir í hlutverki sínu. Samantektina gerði Björk Ólafsdóttir hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
7.Innra mat leikskóla og grunnskóla, leiðbeiningar og viðmið fyrir sveitarfélög - 2011100090
Lagðar fram leiðbeiningar og viðmið fyrir sveitarfélög
í tengslum við innra mat grunnskóla. Þessu riti er ætlað að vera leiðarvísir fyrir nefndina eða aðila á hennar vegum við að sannreyna að innra mat grunnskólans sé framkvæmt á viðunandi hátt og niðurstöður þess séu nýttar til umbóta.
Samantektina gerði Björk Ólafsdóttir hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
í tengslum við innra mat grunnskóla. Þessu riti er ætlað að vera leiðarvísir fyrir nefndina eða aðila á hennar vegum við að sannreyna að innra mat grunnskólans sé framkvæmt á viðunandi hátt og niðurstöður þess séu nýttar til umbóta.
Samantektina gerði Björk Ólafsdóttir hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
8.Greinagerð um viðmið og mat á kennslumagni - 2011100088
Lögð fram tillaga að breytingum á viðmiðum og mati á kennslustundaúthlutun fyrir grunnskóla Ísafjarðarbæjar.
Fræðslunefnd leggur til að tillagan verði send stjórnendum grunnskólanna til umsagnar, með þeim breytingum sem ræddar voru.
9.Brottvikningar úr skólum 2011-2012 - 2011100093
Lögð fram tilkynning um tveggja daga brottvikningu nemenda úr skóla sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar
Önnur mál:
a) Benedikt Bjarnason spurðist fyrir um hvernig ábyrgð skólanna á börnum á skólatíma sé háttað í grunnskólunum. Sviðstjóri skóla- og tómstundasviðs aflar uppýsingar fyrir næsta fund nefndarinnar.
a) Benedikt Bjarnason spurðist fyrir um hvernig ábyrgð skólanna á börnum á skólatíma sé háttað í grunnskólunum. Sviðstjóri skóla- og tómstundasviðs aflar uppýsingar fyrir næsta fund nefndarinnar.
Fundi slitið - kl. 18:00.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Mætt voru: Gísli Halldór Halldórsson formaður, Ólöf Hildur Gísladóttir, Helga Dóra Kristjánsdóttir, Benedikt Bjarnason og Auður Helga Ólafsdó