Fjallskilanefnd
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Fjallskil 2018. - 2018060012
Útgáfa fjallskilaseðils. Samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur, 14. ágúst 2012, skal hlutaðeigandi sveitarstjórn eða fjallskilanefnd árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað. Fjallskilaseðill skal berast eigi síðar en 15 dögum áður en fjallskil byrja þar sem kemur fram hvað hver fjáreigandi á að leggja til fjallskila á því hausti. Skal tilnefna leitarstjóra einn eða fleiri sem stjórni göngum leitarmanna og annist að leitir fari vel og skipulega fram.
Fundi slitið - kl. 10:28.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?
Fyrri leitir verði laugardaginn 22. september og sunnudaginn 23. september 2018 og seinni leitir laugardaginn 6. október og sunnudaginn 7. október 2018, eins og ákveðið var á 10. fundi fjallskilanefndar 18. ágúst 2017.
Fé verði ekki sleppt í haga fyrr en eftir 15. október 2018.
Réttardagar árið 2019 eru ákveðnir laugardagurinn 21. september og sunnudagurinn 22. september fyrir fyrri leitir og seinni leitir laugardagurinn 5. október og sunnudagurinn 6. október.
Lagt er til að eftirtaldir aðilar verði gangna- og réttarstjórar í Ísafjarðarbæ.
Í Skutulsfirði:
Hraunsrétt:
Hallgrímur Hjálmarsson.
Kirkjubólsrétt:
Kristján Jónsson.
Arnardalsrétt:
Þorbjörn H. Jóhannesson.
Í Súgandafirði.
Keflavík að Seli:
Svavar Birkisson.
Frá Seli að Sunddal:
Kristján Karlsson.
Sunddalur fyrir Sauðanes að Flateyri:
Þorvaldur H. Þórðarson.
Í Önundarfirði:
Svæði 1. Frá Flateyri að Breiðadalsá:
Ásvaldur Magnússon.
Svæði 2. Frá Breiðadalsá að Vífilsmýrum:
Ásvaldur Magnússon.
Svæði 3. Vífilsmýrar að Þórustöðum:
Ásvaldur Magnússon.
Svæði 4. Þórustaðir að Ingjaldssandi:
Guðmundur St. Björgmundsson og Steinþór B. Kristjánsson.
Í Dýrafirði, Mýrahreppi hinum forna:
Svæði 1. Ingjaldssandur:
Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 2. Frá Fjallaskaga um Ytri- Hlíðar, Nesdal og Barða:
Elísabet Pétursdóttir.
Svæði 3. Frá Fjallaskaga að Alviðru:
Hermann Drengsson.
Svæði 4. Alviðrufjall og Núpsdalur:
Guðmundur Ásvaldsson og Jón Skúlason.
Svæði 5. Frá Hvassahrygg að Glórugili:
Jón Skúlason og Karl A. Bjarnason
Svæði 6. Frá Glórugili að Höfða:
Hermann Drengsson og Steinþór A. Ólafsson.
Svæði 7. Höfði að Botnsá:
Sighvatur Jón Þórarinsson og Guðmundur Steinþórsson.
Í Dýrafirði, Þingeyrarhreppi hinum forna:
Svæði 1. Frá Botnsá að Þingeyri:
Ómar Dýri Sigurðsson.
Svæði 2. Brekkudalur að Kirkjubólsdal:
Sigþór Gunnarsson og Guðrún Steinþórsdóttir.
Svæði 3. Kirkjubólsdalur að Hólum:
Sigrún Guðmundsdóttir.
Svæði 4. Hólar að Lokinhömrum:
Friðbert Jón Kristjánsson og Kristján Gunnarsson.
Í Arnarfirði, Auðkúluhreppi hinum forna:
Svæði 1. Lokinhamradalur:
Friðbert Jón Kristjánsson.
Svæði 2. Stapadalur og Álftamýri:
Guðmundur G. Guðmundsson.
Svæði 3. Bauluhús að Hjallkárseyri:
Hreinn Þórðarson og Guðrún Íris Hreinsdóttir.
Svæði 4. Hjallkárseyri að varnargarði á Mjólkárhlíð:
Ómar Dýri Sigurðsson.
Svæði 5. Frá Mjólkárhlíð til og með Hokinsdal:
Sæmundur Bjarni Guðmundsson.
Húsráðendur þar sem aðkomufé er rekið til réttar eða húsa skulu tilkynna eigendum þess um það svo fljótt sem auðið er.