Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 17. fundur - 20. ágúst 2015
Dagskrá:
1. |
Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2015 - 2015020104 |
|
Bæjarráð vísar erindi Antons Helgasonar, heilbrigðisfulltrúa, f.h. Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, dags. 30. apríl sl., móttekið 18. júní sl., til umhverfis- og framkvæmdanefndar, þar sem tilkynnt er um bílaálímingar og hvernig vörslu bifreiða skuli háttað eftir að þær eru teknar í vörslu. |
||
Umhverfisfulltrúa falið að finna hentugan stað og þann kostnað sem fellur til við að gera fullnægjandi aðstöðu fyrir bifreiðar sem sveitarfélagið tekur í vörslu. |
||
|
||
2. |
Tjaldsvæði í Ísafjarðarbæ 2016 - 2015080043 |
|
Framtíðarsýn og stefna Ísafjarðarbæjar í rekstri tjaldsvæða. Lagt fram yfirlit yfir útgjöld og rekstrarkostnað sl. 3 ár. |
||
Umhverfisfulltrúa falið að koma með sundurliðaðar kostnaðartölur eftir tjaldsvæðum og að kanna notkun gesta sem ekki greiða fyrir þjónustu á tjaldsvæðunum. |
||
|
||
3. |
Ágengar plöntur 2016 - 2015080042 |
|
Lagðar fram upplýsingar um ágengar plöntutegundir í sveitafélaginu og áætlaðan kostnað við að hindra útbreiðslu þeirra. |
||
Umhverfisfulltrúa falið að kanna reglur um búfjárhald í Ísafjarðarbæ, skoða frekari útfærslur á beitartilraun og samvinnu við íbúa um heftingu útbreiðslu á lúpínu. Nefndin styður ekki tillögu um notkun eiturefna á ágengar plöntur. |
||
|
||
4. |
Forgangsröðun opinna svæða - 2015080048 |
|
Umræða um forgangsröðun opinna svæða. Lögð fram drög að grænu bók Ísafjarðarbæjar og uppdráttum að forgangsröðun. |
||
Umhverfisfulltrúa falið að undirbúa kynningu á umhirðu og slætti opinna svæða. |
||
|
5. Önnur mál:
Nefndin felur tæknideild Ísafjarðarbæjar að kanna útfærslur Akureyrarbæjar við móttöku á óvirkum úrgangi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Lína Björg Tryggvadóttir |
Jóna Símonía Bjarnadóttir |
|
Gísli Halldór Halldórsson |
Helga Dóra Kristjánsdóttir |
|
Ralf Trylla |
Brynjar Þór Jónasson |
|
|