Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 14. fundur - 28. maí 2015
Dagskrá:
1. |
Verndar- og stjórnunaráætlun fyrir náttúruvættið Dynjanda í Arnarfirði - 2014100066 |
|
Lagður fram tölvupóstur frá Hákoni Ásgeirssyni (Umhverfisstofnun), dags. 20.5.2015, með lokaútgáfu verndar- og stjórnunaráætlunar Dynjanda. |
||
Nefndin þakkar framlögð gögn en óskar eftir því að þolmarkagreiningu svæðisins verði flýtt svo hún verði tilbúin áður en Dýrafjarðargöng verða að veruleika. Þá bendir umhverfis- og framkvæmdanefnd á að með framlögum til uppbygginga innviða á ferðamannastöðum víða um land er nú gert ráð fyrir gerð salernisaðstöðu fyrir ríkisfé og vill nefndin að skýrt verði betur hver ábyrgð Ísafjarðarbæjar verður varðandi uppbyggingu og viðhald þessarar aðstöðu á Dynjanda. |
||
|
||
2. |
Sorpmál 2017 - 2015020030 |
|
Stefnumótun sorpmála 2017. Umræða um framtíð málaflokksins. |
||
Rætt um framtíðarfyrirkomulag sorpmála í Ísafjarðarbæ. Starfshópi nefndarinnar falið að vinna málið áfram og kanna ólíkar aðferðir til sorpförgunar og jarðgerðar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Lína Björg Tryggvadóttir |
Kristín Hálfdánsdóttir |
|
Jóna Símonía Bjarnadóttir |
Helga Dóra Kristjánsdóttir |
|
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson |
Ralf Trylla |
|
Brynjar Þór Jónasson |