Þjónustuhópur aldraðra - 66. fundur - 16. desember 2010
Mætt voru:, Halldóra Hreinsdóttir og Helgi Sigmundsson. Maron Pétursson, forstöðumaður á Hlíf, mætti til fundarins. Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður forfallaðist.
Jafnframt mætti á fundinn frá Skóla- og fjölskylduskrifstofu Sædís María Jónatansdóttir, sem jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Þjónusta við aldraða.
Rætt um mötuneytið á Hlíf. Þjónustuhópur er upplýstur um fyrirhugaðar breytingar á mötuneytinu á Hlíf og óskar eftir að fá að fylgjast með frekari útfærslum áður en fyrirhugaðar framkvæmdir koma til framkvæmda.
Þjónustuhópur er upplýstur um að sveitarfélagið leiti leiða í að ná fram hagkvæmni í rekstri Sunnuhlíðar á Suðureyri.
Rætt um breytingar á innheimtuformi á rekstargjöldum á íbúðum aldraðra á Hlíf. Þjónustuhópur leggur áherslu á að fyrirhugaðar breytingar verði vel kynntar fyrir íbúum á Hlíf.
2. Trúnaðarmál.
Tólf trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók þjónustuhóps aldraðra.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:25
Halldóra Hreinsdóttir
Helgi Sigmundsson
Sædís María Jónatansdóttir