Þjónustuhópur aldraðra - 62. fundur - 13. janúar 2010
Þetta var gert:
1.
Uppfærð umsögn og þarfagreining vegna fyrirhugaðrar byggingar hjúkrunarheimilis í Ísafjarðarbæ. Greinargerðin samþykkt og send félagsmálanefnd og bæjarráði Ísafjarðarbæjar. Greinargerðin er jafnframt fylgigagn með umsókn í framkvæmdasjóð aldraðra.
2.Umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra.
Rætt um umsóknir í framkvæmdasjóð aldraðra vegna byggingar hjúkrunarheimilis, breytinga á dagvist aldraðra og vinnustofu aldraðra á Hlíf. Jafnframt er sótt um í sjóðinn vegna breytinga á húsnæði vegna samþættingar heimahjúkrunar og heimaþjónustu og tilfærslu á heimaþjónustu.
3. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók þjónustuhóps aldraðra.
Geirþrúður Charlesdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:30
Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður
Helgi Sigmundsson
Halldóra Hreinsdóttir
Geirþrúður Charlesdóttir
Margrét Geirsdóttir
Er hægt að bæta efnið á síðunni?